153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

styrkur til N4.

[11:02]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Það gerist margt á síðustu dögunum fyrir þinglok og því miður er það ekki allt til eftirbreytni. Til að mynda var fallið fyrirvaralaust frá hækkun gjalda upp á nokkur hundruð milljónir á fyrirtæki sem stunda sjókvíaeldi eftir að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi mótmæltu í hækkuninni. Það var eitt. Annað var svo atburðarásin í kringum sérstakan og mjög myndarlegan styrk til eins fjölmiðils sem ríkisstjórnarflokkarnir munu seint geta hreykt sér af. Þar var reynt að lauma inn 100 millj. kr. styrk til lítils fjölmiðils sem er í eigu ríkustu fyrirtækja landsins; KEA, Kaupfélags Skagfirðinga og Síldarvinnslunnar, þar sem Samherji á stærsta hlutinn. 100 millj. kr. til lítils fjölmiðils fram hjá hinu almenna styrkjakerfi fjölmiðla sem síðan enda hjá ríkustu fyrirtækjum landsins.

Framsetningin á málinu var villandi og henni var ætlað að slá ryki í augu fólks. Síðan er brugðist við í ofboði síðdegis í gær, nefndaráliti breytt eftir að því hafði verið dreift og skilyrðunum breytt þar inni í. Þetta var gert vegna þess, og nú vitna ég orðrétt í nefndarálitið eftir að það fékk fegrunaraðgerðina, með leyfi forseta: Vegna umræðunnar í fjölmiðlum. Ekki vegna þess að málið var sjoppulegt sjúsk frá upphafi til enda heldur vegna þess að fjölmiðlar upplýstu um skandalinn. Sumir þeirra fjölmiðla eru mun fjölmennari, sinna mun umfangsmeiri starfsemi og halda úti mun kostnaðarsamari miðlun fréttaefnis en N4, en hafa fengið mun lægri upphæðir en þarna stóð til að greiða út.

Ég spyr: Vissi hæstv. menningarmálaráðherra að meiri hluti fjárlaganefndar ætlaði að setja inn þessar 100 milljónir fram hjá styrkjakerfinu til hinna fjölmiðlanna áður en það rataði inn í tillöguna?