153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

styrkur til N4.

[11:04]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég er sammála hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að ræða stöðu fjölmiðla, ekki bara hér á landi heldur í Evrópu og víðar, vegna þess að það hefur átt sér stað algjör breyting á umhverfi fjölmiðla, þ.e. hvernig þróun auglýsingatekna hefur verið. Auglýsingatekjur eru í auknum mæli að fara erlendis eins og tölur Hagstofunnar benda til. Varðandi styrki til einkarekinna fjölmiðla þá er það mín afstaða að það sé ekki spurning að allt á að fara í gegnum almennt kerfi og það kerfi sem var þróað á síðasta kjörtímabili hefur reynst bæði vera gagnsætt, skilvirkt og viðkomandi fjölmiðlar hafa getað áætlað sirka hvað þeir fá út frá þeim leikreglum sem þar voru kynntar. Það er þó galli á því að við höfum haft stuttan gildistíma og við þurfum að þróa þetta kerfi betur.

Varðandi spurningu hv. þingmanns þá var ráðherranum ekki kunnugt um að þessi tillaga ætti að fara fram hjá hinu almenna styrkjakerfi.