153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

styrkur til N4.

[11:05]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað ótrúlega áhugavert að heyra að 100 millj. kr. styrkur sem átti að lauma fram hjá hinu almenna styrkjakerfi hafi ekki verið með vitneskju hæstv. ráðherra. Það segir auðvitað margt um það hvað gerðist þarna inni í fjárlaganefndinni núna á síðustu metrunum fyrir jól. Og af hverju er þetta alvarlegt? Jú, ég ætla að leyfa mér að vitna í Þórhall Gunnarsson, sem starfar hjá Sýn, þar sem hann er spurður um þetta í fjölmiðlum í dag. Hann svarar:

„Ég er kominn á þá skoðun að stjórnmálamönnum finnist gott að hafa þetta svona, að með þessum hætti hafi þeir betri tök á fjölmiðlaumhverfinu og telji sig geta refsað með skerðingum eða umbunað með fjármunum úr ríkissjóði.“

Þetta auðvitað segir okkur allt um það hvers vegna þetta er svona alvarlegt mál. Þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra, úr því að hann vissi ekki af þessu fyrir fram: Hvað finnst hæstv. ráðherra um þetta verklag meiri hluta fjárlaganefndar? Er þetta verklag og þessi atburðarás ekki einmitt til þess fallin að varpa rýrð og skugga á hið almenna kerfi og draga úr trausti okkar allra, líka fjölmiðlanna sem starfa innan kerfisins, á þessu fyrirkomulagi?