styrkur til N4.
Virðulegur forseti. Í mínum huga er það alveg ljóst að þegar við erum að vinna með styrkjakerfi þá ber að úthluta styrkjum samkvæmt gagnsæi, jafnræði og skilvirkni. Þess vegna settum við þetta almenna kerfi á. Ég er sammála hv. þingmanni, það er gríðarlega mikilvægt að kerfið sé með þeim hætti. Ég ætla hins vegar að vera ósammála hv. þingmanni og þeim sem hann vitnaði í að þetta varpi einhverri rýrð á kerfið, vegna þess að hvað er að gerast? Jú, þessir fjármunir eru einmitt að fara í þetta almenna kerfi þannig að einkareknu fjölmiðlarnir munu fá hærri styrki vegna þessa og við munum nýta kerfið eins og það var hannað og ég tel að það sé rétt nálgun.