153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

menningarminjar.

429. mál
[14:15]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Fyrir réttum klukkutíma síðan barst fulltrúum í hv. allsherjar- og menntamálanefnd póstur frá Félagi fornleifafræðinga þar sem þau benda á ágalla á frumvarpinu sem má rekja til þess að ekki nægilega mikið samráð var haft við vinnslu frumvarpsins og ekki nægilega mikill tími gefinn til að fara yfir þessi mál. Þetta mál er unnið í miklum flýti og kom mjög seint fram. Við höfum haft ár ef ekki áratugi til að fara í þá heildarendurskoðun sem þörf er á í þessum málaflokki. Ég tel þetta mál ekki fullunnið og ákveðna áhættu í því að samþykkja það eins og það er. Því legg ég til að því verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar.