153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

Vísinda- og nýsköpunarráð.

188. mál
[14:23]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Breytingartillaga þessi felur það í sér að umsýsla Vísinda- og nýsköpunarráðs verði sjálfstæð, þ.e. að hún verði ekki inni í ráðuneytinu heldur hjá Rannsóknamiðstöð Íslands. Mikilvægt er að tryggja faglega umsýslu og það verður einungis gert með því að hún verði sjálfstæð. Ólíklegt er að umsýsla með ráðinu innan ráðuneytisins sem tengist málaflokknum stuðli að því.