Vísinda- og nýsköpunarráð.
Virðulegi forseti. Hér er breytingartillaga við 5. gr., Tilnefningarnefnd, þar sem er lagt til að meðlimum í tilnefningarnefnd fjölgi úr fimm í sjö og þeim verði fjölgað með því að einn komi frá Verkfræðingafélagi Íslands, einn frá samtökum hugvitsfólks, einn samkvæmt tilnefningu samtaka sprotafyrirtækja og fulltrúi frá samtökum launþega falli út.
Mig langar að lesa hér úr umsögn Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna, með leyfi forseta:
„Enginn fulltrúi hugvitsmanna fær að koma að tilnefningum í það ráð sem móta skal stefnu í málefnum hugvits og nýsköpunar. Þetta fyrirkomulag mun útiloka aðkomu hugvitsfólks að ráðinu, líkt og verið hefur. Hugvitsmönnum hefur markvisst verið haldið utan við alla stefnumótun í nýsköpun; bæði á vegum Vísinda- og tækniráðs og á vegum síns ráðuneytis. Sú stefna virðist eiga að ríkja áfram, samkvæmt þessum frumvarpsdrögum, sem eingöngu þjónar málstað stórra hagsmunaaðila, en víkur þjóðarhagsmunum til hliðar. Með því er útilokuð hin mikla og fjölbreytta reynsla og þekking sem hugvitsmenn búa yfir.“
Á litla sæta Íslandi, sem byggir svo mikið á útilokun, (Forseti hringir.) er grundvallaratriði að við samþykkjum þetta og leyfum öllum að koma að borðinu.