leigubifreiðaakstur.
Hæstv. forseti. Ég undirrita álit 1. minni hluta í hv. umhverfis- og samgöngunefnd en framsögumaður þess álits er hv. þm. Andrés Ingi Jónsson. Ég tel rétt að gera grein fyrir afstöðu Samfylkingarinnar í þessu máli. Við styðjum markmið þessa frumvarps og þær lagabreytingar sem hér er verið að ráðast í. En vegna þess að meiri hlutinn hér inni getur ekki stigið það eðlilega og réttmæta skref að samþykkja endurskoðun þessara miklu lagabreytinga að tveimur árum liðnum þá sé ég mér ekki fært að styðja þetta frumvarp, því miður. Það hefði verið algerlega útlátalaust af hálfu meiri hlutans að setja inn breytingartillögu og styðja breytingartillögu 1. minni hlutans um endurskoðunina því að hér er verið að gera mjög viðamiklar breytingar, vonandi til batnaðar, en það er líka verið að gera mjög viðamiklar breytingar á réttindum fólks á vinnumarkaði og þess vegna verðum við að endurskoða og skoða áhrifin og afleiðingarnar að tveimur árum liðnum.