153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[14:32]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um miklar breytingar á leigubílamarkaðnum og ég fagna því að minni hlutinn hefur ekki komið með neinar breytingar og er eiginlega sammála markmiðum frumvarpsins en telur mikilvægt að það þurfi að endurskoða þetta, eins og meiri hlutinn leggur til.

„Sem fyrr greinir verða umtalsverðar breytingar á regluumhverfi leigubifreiðaaksturs hér á landi verði frumvarpið að lögum. Telur meiri hlutinn því nauðsynlegt, líkt og ávallt þegar verulegar breytingar eru gerðar á lögum, að vel verði fylgst með framvindu mála eftir gildistöku laganna og áhrif breytinganna metin. Meiri hlutinn hvetur ráðherra til að gæta vel að slíkri eftirfylgni og bendir á að líta megi til Noregs sem fyrirmyndar þar um …“

Við viljum fylgjast með því hvaða áhrif þetta hefur.