leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Það eru yfir 600 einstaklingar, sjónskertir og blindir einstaklingar, sem njóta þjónustu Hreyfils. Þetta er starfsstétt sem í rauninni er að ströggla. Þeir gera lítið meira en að geta alið önn fyrir sér og fjölskyldum sínum. Án þessarar þjónustu væri ég hvorki menntaður lögfræðingur né alþingismaður. Án þessarar þjónustu sæti ég föst heima. Ég get ekki ímyndað mér stöðuna ef hlutirnir fara eins og maður er að heyra bæði frá bílstjórunum sjálfum og öðrum, ef það á að fara að fjölga mjög mikið í þessari stétt. Þrátt fyrir að maður styðji atvinnufrelsi þá breytir það ekki þeirri staðreynd að þetta er ekki bara þjónusta við blinda og sjónskerta heldur líka þjónusta á morgnana við börn sem hafa í rauninni verið það ólánsöm að hafa verið tekin frá foreldrum sínum og eru á framfæri og í umönnun hins opinbera. Þetta eru einstaklingar hjá Hreyfli sem eru á 24 tíma sólarhringsvakt allan ársins hring, (Forseti hringir.) öryggi sem við getum stólað á og fólkið sem virkilega þarf á þessu að halda. Ég trúi því ekki að (Forseti hringir.) það eigi að fórna nákvæmlega þessu og ég mun segja nei fyrir allan peninginn.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að þegar þingmenn taka til máls um atkvæðagreiðslu er ræðutíminn aðeins ein mínúta. )