leigubifreiðaakstur.
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um stórt og mikið framfaramál, sérstaklega í bættu öryggi og bættri þjónustu við notendur þessarar mikilvægu þjónustu. Ég tel að þetta frumvarp, verði það að lögum, geti stórbætt og gert þjónustu fjölbreyttari í leigubifreiðaakstri í dag. En það kom líka skýrt fram við vinnslu þessa máls, sem við þekkjum og höfum heyrt, að kjör leigubílstjóra í dag eru ekki góð. Ég held að með þessum breytingum sé hægt að gera kjör þeirra enn betri. En það kom líka fram í vinnslu þessa máls, varðandi ESA, Noreg og allt það sem við erum búin að skoða mjög vel, að þessi löggjöf hér er ekki byggð á grunni ESA. Þetta kom vissulega til umtals. Við byggðum þetta á því hvernig þetta hentar best íslenska markaðnum, hvernig við veitum þeim sem þurfa þessa þjónustu á Íslandi sem besta þjónustu og hvernig við bætum hag leigubílstjóra sem mest. Þannig er þetta unnið og þetta er flott og gott mál sem við eigum að styðja.