leigubifreiðaakstur.
Virðulegur forseti. Ég gagnrýndi fjarveru stjórnarliða nokkuð í umræðunni í gærkvöldi. Það kom beinlínis enginn hér í umræðuna til að mæla þessu máli bót. Ég velti því upp hvort það væri ótti við andsvör sem þar var. Sá eini sem kom, ég átti eftir að koma að þessu, var hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir, framsögumaður nefndarálits, og hann var hér fyrst og fremst af því að hann gat ekki annað. Annars hefði ekki verið mælt fyrir nefndarálitinu. Það var enginn annar stjórnarþingmaður sem kom í salinn og mælti þessu máli bót. Ég vil bara nefna það hér, milli 2. og 3. umr., að það liggur fyrir breytingartillaga meiri hluta um að fresta gildistöku til 1. apríl 2023. Miðflokkurinn mun leggja fram breytingartillögu við 3. umr. þar sem lagt er til að gildistöku verði frestað til 1. janúar 2024. Það er til þess að gefa stjórnvöldum svigrúm til að átta sig á því mati sem nú fer fram í Noregi á svipuðum breytingum þannig að við getum lært af reynslu Norðmanna (Forseti hringir.) í stað þess að fara af stað í þessa óvissuferð sem nú skyndilega er mikill áhugi á að „mónitora“ sérstaklega vel hver áhrifin verða af.