leigubifreiðaakstur.
Herra forseti. Markmið frumvarpsins eru ágæt og sannarlega má gera úrbætur á leigubílamarkaði á Íslandi. Það skiptir samt máli hvernig það er gert. Við umfjöllun nefndarinnar kom nokkuð skýrt fram að það er verið að teikna upp kerfi sem er okkur allt of kunnuglegt, þar sem er hreinlega boðið upp á illa meðferð á starfsfólki. Án þess að setja sérstaka varnagla í þessa sérstöku löggjöf þá verður t.d. hægðarleikur að setja upp starfsstöð utan landsteinanna og stýra þaðan útsendu starfsfólki á Íslandi með það beinlínis að markmiði að sniðganga íslenska kjarasamninga. Við þekkjum þetta í fluginu og við þekkjum þetta í byggingariðnaðinum. Þegar við spurðum ráðuneytið hvort við gætum ekki tekið á þessu í þessum geira sérstaklega, þá sagði ráðuneytið að það benti ekkert sérstaklega til þess að hættan yrði meiri í þessum en öðrum iðnaði eða öðrum greinum. Það er bara ekki nógu gott. Það er ekki nógu gott að benda á bölið annars staðar til að réttlæta það hér. Þess vegna sé ég mér ekki fært að styðja þetta mál, þótt sannarlega hefði verið gaman að fá útfærslu á því sem væri þess eðlis að hægt væri að standa með henni.