153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[14:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um mál Framsóknarflokksins og ríkisstjórnarinnar allrar um að vega að samvinnufélögum, í þessu tilviki samvinnufélögum leigubílstjóra, og í raun leggja af heila stétt. Stéttir í landinu sem þurfa að uppfylla hinar ýmsu kröfur njóta jafnan verndar fyrir vikið, en ein stétt manna á ekki að njóta slíkrar verndar heldur á með löggjöf í raun að leggja hana niður. Það er stétt sem hefur þurft að uppfylla sífellt meiri kröfur og aukin útgjöld, m.a. vegna stefnu þessarar ríkisstjórnar, ég tala nú ekki um að þurfa að þrauka og fara í gegnum Covid-faraldurinn sem menn eru loks núna byrjaðir að vinna sig upp úr. En þá er jólagjöf stjórnvalda til heillar stéttar að hún skuli leggjast af. Því er svarað til að það verði fylgst með áhrifunum. Já, það verður fylgst með áhrifunum — einmitt það. En hver verða viðbrögðin þegar þar að kemur, þegar menn eru búnir að missa vinnuna sem þeir hafa haft jafnvel áratugum saman, jafnvel í 25 ár? (Forseti hringir.) Þá verður ekkert gert nema, herra forseti, breytingartillaga Miðflokksmanna verði samþykkt. Þá er raunverulega hægt að skoða málið.