leigubifreiðaakstur.
Herra forseti. Hér er meiri hluti þings búinn að keyra sig í gegnum frumvarp sem gerir umtalsverðar breytingar á rekstrarumhverfi leigubifreiða á Íslandi. Í nefndaráliti meiri hluta er talað um að vegna þess sé mikilvægt að fylgja breytingunum eftir og sjá hvort lagfæra þurfi lögin þegar komin er reynsla á þau. Við vitum öll sem sitjum hérna að slíkur texti í nefndaráliti hefur óskaplega lítið upp á sig, enda vinnum við ekki við að semja nefndarálit heldur samþykkja lög. Við erum löggjafi, ekki bara einhver málfundaæfingastofa sem dælir út nefndarálitum. Þess vegna leggjum við til, fulltrúar Pírata og Samfylkingar í umhverfis- og samgöngunefnd, að þessi vilji meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar sem birtist í nefndarálitinu sé einfaldlega festur í lög, það sé sett inn bráðabirgðaákvæði um að tveimur árum liðnum eigi ráðherra að setjast niður og endurskoða í ljósi fenginnar reynslu. Greinilega tökum við ekki öll hérna hlutverki löggjafans jafn hátíðlega og erum sátt við að ráðherrann pikki upp það sem við stráum í nefndarálit, (Forseti hringir.) þrátt fyrir að við vitum vel — við erum öll með opin augu fyrir því — að ráðherra hunsar þetta eins og hann lystir.