staðfesting rammasamnings um fiskveiðar milli Íslands og Færeyja.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu rammasamnings um fiskveiðar milli ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á rammasamningi um fiskveiðar milli ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja sem gerður var í Reykjavík 14. október 2022. Með rammasamningnum verða þær breytingar á samningsframkvæmd ríkjanna að hverfa frá gerð árlegs bréfaskiptasamnings Íslands og Færeyja um fiskveiðar í lögsögu ríkjanna, sem lagður hefur verið fyrir Alþingi á hverju haustþingi. Í staðinn verði framvegis heimilt að semja um þessi fiskveiðiréttindi, sem og önnur skyld atriði, á samráðsfundum ríkjanna sem haldnir verða á grundvelli heimildar í rammasamningnum.
Eftir framlagningu tillögunnar á Alþingi kom í ljós að ekki yrði mögulegt að ljúka staðfestingu rammasamningsins á stjórnskipulegan hátt í Færeyjum, m.a. vegna þingkosninga, fyrir upphaf næsta fiskveiðiárs 1. janúar nk. Til þess að rammasamningurinn öðlist gildi þurfa báðir samningsaðilar að hafa tilkynnt hvor öðrum að innlendum skilyrðum hafi verið fullnægt. Þar sem staðfesting rammasamningsins mun tefjast af hálfu gagnaðila hefur verið gerður bréfaskiptasamningur til eins árs með hefðbundnu sniði fyrir árið 2023 um heimildir til veiða innan lögsögu ríkjanna á því ári.
Í bréfaskiptasamningnum er kveðið á um heimildir færeyskra skipa til veiða á loðnu, kolmunna og norsk-íslenskri síld innan fiskveiðilögsögu Íslands og heimildir íslenskra skipa til veiða á kolmunna, norsk-íslenskri síld og makríl í fiskveiðilögsögu Færeyja.
Að framansögðu virtu leggur utanríkismálanefnd til að tillagan verði samþykkt með þeim breytingum sem nefndar voru. Undir nefndarálitið rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Birgir Þórarinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Logi Einarsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.