staðfesting rammasamnings um fiskveiðar milli Íslands og Færeyja.
Virðulegi forseti. Aldrei hefði ég haldið að ég væri með einhverja skoðun á staðfestingu rammasamnings um fiskveiðar milli Íslands og Færeyja en ég geri athugasemd, og gerði það líka í 2. umr., við að það sé verið að færa þetta staðfestingarvald frá Alþingi, eitthvað sem hefur alltaf verið í höndum löggjafans, yfir til framkvæmdarvaldsins. Þetta er náttúrlega venja sem hefur alltaf verið til staðar en ekki bara það, þegar við byrjum að færa staðfestingarvald og annars konar völd sem hafa alltaf verið í höndum löggjafans, þá Alþingis, yfir til framkvæmdarvaldsins þá erum við í svolítið vondum málum. Ég þarf alltaf að minna á að hér er þingræði, ekki ráðherraræði. Þess vegna er ég gul á þessu — en annars bara flott.