153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

staðfesting rammasamnings um fiskveiðar milli Íslands og Færeyja.

528. mál
[15:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það kom fram í nefndinni, eftir fyrirspurn frá mér, varðandi Færeyjar og samskipti þeirra við Rússland og þennan samning, en Færeyingar hafa ákveðið að nýta dýrmætt fullveldi sitt til að gera samning við þjóð sem fer með ofríki og ofbeldi gagnvart annarri þjóð, sem er Úkraína, að utanríkisráðuneytið hefði ekki nýtt tækifærið — mér skilst að samtölin hafi verið síðast í október miðað við þær upplýsingar sem við fengum — til að lýsa yfir óánægju okkar Íslendinga með þetta mál. Hitt er síðan að þessi samningur lýtur að því að færa hlutina í ákveðið praktískara eða raunsærra horf og ég styð það. Það breytir ekki því að þó að verið sé að færa þetta yfir til embættismanna, þessa framkvæmdarlegu hluti, þá verður hið pólitíska vald alltaf til staðar. Það þýðir ábyrgð líka. Það firrir ekki utanríkisráðherra eða aðra pólitískt kjörna fulltrúa ábyrgð á því að þessa samninga þarf að gera og til þess þarf m.a. hv. utanríkismálanefnd (Forseti hringir.) að hafa eftirlit með þessum samningum.

Ég mun greiða atkvæði með þessu en mér finnst að (Forseti hringir.) íslenska utanríkisþjónustan og þar með talið hæstv. utanríkisráðherra verði að nýta þau tækifæri sem gefast til að lýsa yfir óánægju þegar samskipti vinaþjóða okkar eru með þeim hætti sem Færeyingar hafa viðhaft gagnvart Rússum.