153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

532. mál
[15:08]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Það eru um tvö ár síðan það var samþykkt hér á þingi að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks en ríkisstjórnin dregur lappirnar á eftir sér við að ganga í það mál. Ef búið væri að afgreiða það í dag værum við ekki að greiða atkvæði um þennan samning. Jú, við verðum að segja já við þessum samningi en ég óttast að enn eina ferðina sé verið að skilja ákveðinn hóp eftir. Enn eina ferðina eiga einhverjir einstaklingar að fá að liggja í rúmi sínu og fá enga þjónustu, enn eina ferðina á jafnvel að taka þessa einstaklinga og flytja þá hreppaflutningum landshlutanna á milli þar sem þeir eru settir inn á hjúkrunarheimili þar sem enginn vill hugsa um þá og hjúkrunarheimilið vill jafnvel ekki einu sinni taka við þeim. Þetta er okkur til háborinnar skammar og við eigum að sjá til þess að þessir einstaklingar, lamað fólk, fái þá þjónustu sem það á rétt á.