153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

þjónusta við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

532. mál
[15:09]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég segi já en ég minni á að bráðabirgðaákvæðið sem er hérna, með takmörkun á fjölda samninga, er það sem kemur í veg fyrir fulla innleiðingu á þessum lögum. Vegna þessa bráðabirgðaákvæðis, sem átti að vera liðið undir lok með 172 samningum á þessu ári og vegna þess að verið er að framlengja þá, er enn fjöldatakmörkun á fólki sem getur fengið þessa þjónustu. Það er ekki gott. Það er verið að framlengja fulla innleiðingu á þessum lögum um a.m.k. tvö ár. Við vonum að það verði ekki lengri tími en það. Þetta er það sem við erum því miður bara að samþykkja hérna, a.m.k. skref í rétta átt en því miður ekki allt skrefið eins og hefði átt að vera komið.