153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:26]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar sem við tókum að nýju inn í nefndina milli 2. og 3. umr. Þar var fyrst og fremst um að ræða, eins og gjarnan er, millifærslur og lagfæringar en að auki aðgerðir sem eru í tengslum við kjarasamninga.

Markmið þeirra er að styðja við lífskjör lág- og millitekjufólks með markvissum aðgerðum í húsnæðismálum og auknum stuðningi við barnafjölskyldur. Áhersla er á fjölgun íbúða og áframhaldandi uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu með auknum stofnframlögum auk endurbóta í húsnæðisstuðningi.

Þá verður unnið að bættri réttarstöðu og húsnæðisöryggi leigjenda. Barnabótakerfið verður einfaldað og stuðningurinn aukinn verulega sem fjölga mun barnafjölskyldum sem fá barnabætur. Aðgerðirnar leiða til þrenns konar breytinga sem fram koma við þessa 3. umr.:

Vaxtabæturnar hækka um 600 millj. kr. með því að hækka eignarskerðingarmörk um 50% í vaxtabótakerfinu í byrjun næsta árs.

Húsnæðisbætur hækka um 1.100 millj. kr. Húsnæðisbætur leigjenda hækka um 13,8% í ársbyrjun og tekjuskerðingarmörk húsnæðisbóta um 7,4%. Sú hækkun er til viðbótar við 10% hækkun í júní sl. Áætlað er að hækkun bóta og hækkun tekjuskerðingarmarka nái til um 17 þúsund heimila á landinu.

Barnabætur hækka um 600 millj. kr. á næsta ári. Gert er ráð fyrir algerri uppstokkun á barnabótakerfinu sem kemur til framkvæmda á tveimur árum, 2023 og 2024. Þar er verið að draga úr skerðingum, jaðarskattar af völdum barnabóta lækka og skilvirkni og tímanleiki bótanna verður aukinn. Með þessum breytingum er verið að einfalda kerfið og styrkja það til að fleiri fái barnabætur þar sem þær ná nú hærra upp tekjustiga. Þegar allar breytingar verða komnar til framkvæmda er áætlað að heildarútgjöld kerfisins verði um 5 milljörðum kr. hærri en ella miðað við óbreyttar fjárhæðir og skerðingarmörk.

Fleiri mál hafa einnig verið kynnt sem hluti af stuðningnum en þau eru nú þegar fjármögnuð á næsta ári og kalla því ekki á breytingartillögur í frumvarpinu. Þar má nefna að heildarumfang stofnframlaga til að auka framboð íbúða í almenna íbúðakerfinu verður samtals 4 milljarðar kr. á næsta ári.

Á móti hækkunum vegur að varasjóður fjárlaga er lækkaður um 1,7 milljarða vegna aðgerða í húsnæðismálum.

Það eru líka gerðar tillögur bæði á tekju- og gjaldahlið sem eru til komnar vegna breytts skipulags og flokkunar á eignasafni Ríkiseigna. Ríkiseignir eru miðlægur umsýsluaðili sem hefur umsjón með flestum fasteignum ríkisstofnana, sér um viðhald þeirra og innheimtir leigu. Leigulíkanið gerir ráð fyrir að ríkisaðilar greiði fulla leigu vegna húsnæðis sem þeir nýta, óháð því hvort það sé í eigu ríkis eða einkaaðila. Við sameiningu Ríkiseigna og Framkvæmdasýslu ríkisins haustið 2021 var gerð breyting á Ríkiseignum þannig að þær eru nú eingöngu eignasafn en rekstur og starfsmannahald fer fram í sameinaðri stofnun, Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum.

Við innleiðingu þessa fyrirkomulags hafa komið fram álitaefni um reikningshald, sem m.a. tengjast því hvernig standa ber að endurmati á virði fasteigna. Til að leysa úr ýmsum álitamálum af því tagi er talið nauðsynlegt að færa eignasafnið í A2-hluta ríkissjóðs, enda gerir það mögulegt að innleiða reikningsskil með reglum Fjársýslu ríkisins án þess að það hafi áhrif á almenn reikningsskil stofnana í A1-hluta.

Samkvæmt 50. gr. laga um opinber fjármál skal starfsemi lána- og fjárfestingarsjóða og önnur starfsemi sem rekin er undir stjórn ríkisins og stendur undir sér með sölu á vöru eða þjónustu, leigu eða lánastarfsemi falla undir A2-hluta ríkisins. Ríkiseignir falla undir þessa skilgreiningu enda starfsemin fjármögnuð að öllu leyti með leigutekjum.

Fjárhagsleg áhrif þessa á A1-hluta eru þau að tekjur hækka um 7,2 milljarða sem færast sem vaxtatekjur ríkissjóðs sem Ríkiseignir greiða til ríkissjóðs eftir breytinguna og á móti hækka gjöldin á þjóðhagsgrunni vegna lægri frádráttar innbyrðis færslna.

Það eru gerðar tillögur í fimm liðum vegna breytinga á tekjuhlið fjárlaga. Veigamesta tillagan, bæði á tekju- og gjaldahlið, er vegna flutnings eignasafns sem ég fór hér yfir.

Í öðrum tilfellum er um að ræða endurmat tekjuliða eða breyttar forsendur frá endurmati við 2. umr. um frumvarpið.

Vaxtatekjur ríkissjóðs hækka um 7,2 milljarða sem skýrist alfarið af áðurnefndri tilfærslu eignasafnsins.

Veiðigjaldið: Áætlunin hækkar um 340 milljónir sem er byggt á fjárhæð veiðigjalds sem birt var 2. desember sl.

Gjald vegna fiskeldis: Þar er gerð tillaga um 360 millj. kr. lækkun á liðnum.

Framlag til Happdrættis Háskóla Íslands lækkar um 575 milljónir til samræmis við áform um úthlutun á næsta ári. Um er að ræða leiðréttingu til samræmis við gjaldahlið frumvarpsins.

Síðan eru skilagjald og umsýsluþóknun, sem við vorum að afgreiða hér áðan í tekjubandormi, á einnota umbúðir, að hækka um 343 milljónir vegna tillögu um hækkun skilagjalds á einnota umbúðir. Tekjunum er ráðstafað til Endurvinnslunnar og hafa þar af leiðandi ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.

Hér eru gerðar tillögur sem ekki tengjast stuðningi við gerð kjarasamninga eða tilfærslu eignasafns Ríkiseigna. Þær nema samtals 2,8 milljörðum en á móti vegur að almennur varasjóður fjárlaga lækkar um ríflega 1.800 milljónir. Nettóútgjöld, að frádregnum stuðningi við kjarasamninga, hækka því um rétt um milljarð.

Af þessum gjaldatillögum vega þyngst 1.200 millj. kr. framlög til hjúkrunarheimila til að mæta hækkun daggjalda á næsta ári. Framlagið tengist verkefni um betri vinnutíma í vaktavinnu og er framhald á sambærilegri heimild sem við veittum á þessu ári. Nú þegar er gert ráð fyrir fjárhæðinni í daggjöldum stofnana og er gjaldaheimild fjármögnuð af almennum varasjóði.

Næstmest vega 640 millj. kr. sem einnig tengjast verkefni um betri vinnutíma og snúa að löggæslu, Fangelsismálastofnun og Landhelgisgæslu Íslands. Framlagið er varanlegt.

Því næst kemur 500 millj. kr. tímabundin fjárveiting til að auka viðbúnað lögreglu í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík í maí nk. Gert er ráð fyrir því að tugir þjóðarleiðtoga, ráðherra og embættismanna frá flestum ríkjum Evrópu muni sækja fundinn.

Virðulegur forseti. Gerð er tillaga um 335 millj. kr. til Ríkisútvarpsins til samræmis við endurmetna áætlun fjárlaga um tekjur af útvarpsgjaldi. Endurmatið skýrist að mestu af því að í frumvarpinu láðist að taka tillit til nýrrar áætlunar um innheimtuna.

Gerð er tillaga um 200 millj. kr. lækkun framlaga til Fiskeldissjóðs. Tillagan tengist lækkun tekna vegna gjaldtöku á sjókvíaeldi til samræmis við breytingartillögu meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.

Gerð er tillaga um 100 millj. kr. framlag til Hafrannsóknastofnunar til að koma til móts við þarfir fyrir grunnrannsóknir á lífríki sjávar og til að bæta vöktun á nytjastofnum.

Aðrar tillögur á gjaldahlið vega minna og felast aðallega í millifærslum milli liða sem allar koma fram í breytingartillögum meiri hlutans.

Virðulegi forseti. Við breytingar á frumvarpinu við 2. umr. hækkuðu útgjöld umfram hækkun tekna og af þeim sökum leggur meiri hlutinn fram tillögu um að lántökuheimild ríkissjóðs verði hækkuð úr 220 milljörðum í 240.

Á síðastliðnum árum hefur bókhald Íslands vegna losunarheimilda gróðurhúsalofttegunda ekki verið í samræmi við reikningsskilastaðla og er talin þörf á því að bæta við 6. gr. fjárlaga heimild til ráðherra sem orðast svo:

„Að heimila ráðstöfun á losunarheimildum, í samráði við ráðherra loftslagsmála, sem tilheyra íslenska ríkinu í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda til móts við loftslagsskuldbindingar íslenska ríkisins.“

Með heimildinni yrði mögulegt að ráðstafa óseldum losunarheimildum til að jafna út þörf fyrir nýjar heimildir svo standast megi alþjóðlegar skuldbindingar. Ef til þess kemur að heimildin verði nýtt er þó gert ráð fyrir að aflað verði tekju- og gjaldaheimildar fyrir ráðstöfuninni hjá Alþingi.

Virðulegi forseti. Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef hér farið yfir. Undir þetta rita sú sem hér stendur og hv. þingmenn Haraldur Benediktsson, Vilhjálmur Árnason, Stefán Vagn Stefánsson, Þórarinn Ingi Pétursson og Óli Björn Kárason.