fjárlög 2023.
Frú forseti. „Í ljósi umræðu í fjölmiðlum beinir meiri hlutinn því til ráðherra að endurskoða þær reglur sem gilda um rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni þannig að aukið tillit verði tekið til þeirra sem framleiða efni fyrir sjónvarp.“
Þetta er í niðurlagi nýs nefndarálits sem var uppprentað vegna umræðu í fjölmiðlum. Ég vil spyrja hv. þingmann og formann fjárlaganefndar út í þetta allt saman, þetta bix sem hefur átt sér stað síðasta sólarhring þar sem í nefndaráliti sem studdi breytingartillögur meiri hlutans sem greidd voru atkvæði um í fyrradag, eða daginn þar áður, var annars vegar talað um 100 millj. kr. tímabundið framlag til stuðnings við einkarekna fjölmiðla og ekkert meira og hins vegar framlagið vegna reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða eigið efni fyrir sjónvarpsstöðvar, eða sjónvarpsstöð reyndar. Við erum með ákveðið kerfi sem er lögbundið í fjölmiðlalögum. (Forseti hringir.) Ég spyr því hv. þingmann: Telur hún það auka traust á þessu öllu og vegsemd fjölmiðla þegar gripið er svona freklega inn í það lögbundna form og fyrirkomulag sem við höfum?