fjárlög 2023.
Forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann út í breytingartillögu sem meiri hlutinn gerir varðandi það að heimila ráðstöfun umfram heimildir í ETS-kerfinu til að draga úr kröfum á samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda í þeim hluta kerfisins sem kallast skuldbindingar um samdrátt í losun á beinni ábyrgð stjórnvalda. Í fyrsta lagi þá kemur þessi breyting mjög seint fram, hefur ekki hlotið neina umræðu. Ég hef áhyggjur af því að þetta geti haft mjög neikvæð áhrif á þann hvata sem er í kerfinu til að stjórnvöld verði að ná árangri í loftslagsmálum. Mig langar að spyrja hv. þingmann hér í mínu fyrra andsvari: Hver er þörfin á þessu? Er búið að meta möguleg áhrif á loftslagsmál af þessari tillögu og færi ekki betur á því að geyma þetta og kannski skoða í betra tómi eftir áramót?