fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég þarf svo sem ekkert að orðlengja þetta meira. Ég er ekki sammála hv. þingmanni varðandi það að ríkisstjórnin sýni aðgerðaleysi og komi til með að leggja sig fram um að nýta þetta bara af því að heimildin er til staðar. Ég tel að þetta verði með þeim hætti að ef til þess þurfi að koma, sem við vonum að verði ekki, og ég miða við aðgerðaáætlun og okkar markmið, þá vonast ég sannast sagna til þess að við náum bara hraðari árangri frekar en hægari. Þannig að ég hef ekki sömu áhyggjur og hv. þingmaður af þessu.