153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:46]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Ég skil ekki alveg þetta fjölmiðlamál. 1. desember er skráð inn skjal frá N4 inn í fundagátt Alþingis. 4. desember fáum við tillögur frá meiri hluta fjárlaganefndar, ekki ríkisstjórninni, um 2,7 milljarða, þar á meðal 100 milljónir til einkarekinna fjölmiðla. Hvergi annars staðar kemur fram nein fjárbeiðni í þennan fjárlagalykil þannig að það er augljóst að það er samband á milli þeirra 100 milljóna sem var beðið um í þessari beiðni frá N4 og þeirra 100 milljóna sem fjárlaganefnd leggur til, því að ekki er fjárlaganefnd að fara bara að búa til eitthvað og draga úr eigin hatti hvað það varðar.

Svo hefur það komið fram í fjölmiðlum að einn nefndarmaður í meiri hluta hafi setið hjá við afgreiðslu meiri hlutans á meirihlutafundi af því að hann taldi sig ekki hæfan til að afgreiða það mál. En samt er ekki gert ráð fyrir því á fjárlaganefndarfundi 5. eða 7. desember þegar málið var rætt og afgreitt af hendi fjárlaganefndar. Hvers vegna ekki?