fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég er kannski ágætlega heppin, ég ber ekki ábyrgð á meiri hlutanum, þ.e. nefndarfólki. Það verður að gera grein fyrir sér sjálft. Í tölvupósti sem hv. þingmaður sendi svaraði ég því að ég hefði ekki verið að kanna það neitt sérstaklega sem þingmaðurinn spurði um, þ.e. hæfi annarra. Það er alveg þannig, ég var ekki að kanna það. Allir þingmenn gátu svarað þessum pósti því að hann var sendur á okkur öll. Það var ekki mitt að svara fyrir alla hina, þannig að því sé haldið til haga. Mér finnst það mikilvægt. En ég vil árétta það samt sem áður að það hefði sannarlega verið gott að það hefði komið fram. En það breytir því ekki að viðkomandi aðili er ekki vanhæfur. (Gripið fram í.) Hann er ekki vanhæfur og um það hefur verið skrifuð álitsgerð sem ég segi hér enn og aftur frá. Hvað sem okkur kann að finnast um það sjálfum þá er það svo að heimildir okkar þingmanna eru mjög víðtækar. Ég hef nefnt það t.d. hvort bændur mættu þá ekki greiða atkvæði um búvörusamninginn af því að það kemur við peningabudduna hjá þeim. Og við erum jú með starfandi bændur hér á þingi.