153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:55]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Mér þótti nú bara skondnast að þingmenn hefðu ekki tekið eftir þessu í fjögurra daga umræðu. Það þurfti fjölmiðla til að segja þeim frá þessari tillögu, svo það sé nú sagt, (Gripið fram í.) þannig að það var ekki meiri eftirtekt en það. (SGuðm: Þetta er útúrsnúningur.) — Nei, þetta er bara rétt. (Gripið fram í: … við atkvæðaskýringu.) Það þurfti fjölmiðla til. (Forseti hringir.) (Gripið fram í.) Ég vil bara segja það enn og aftur: Hér er verið að tala um fjölmiðla sem eru líka — af því að hv. þingmaður var hér í óundirbúinni fyrirspurn í dag og tengdi eignarhald á þessari stöð, sem títt hefur verið rætt um, við útgerðina. Morgunblaðið var að fá líka úr síðustu úthlutun. Hverjir eru aðaleigendur þar? Er það ekki útgerðin? Bara til að hafa sagt það. (SGuðm: Þetta eru útúrsnúningar, Bjarkey.) Byggðastofnun (Gripið fram í: Þetta eru útúrsnúningar.) kemur að þessu fyrirtæki á sínum tíma … (Gripið fram í.)— Má ég svara? Byggðastofnun kemur að þessu verkefni eins og hún hefur komið að mörgum verkefnum í gegnum tíðina og það að ætla að segja að hún sé vanhæf — vanhæf — til að fjalla um eða taka út dreifbýlismiðla finnst mér svo ósanngjarn málflutningur gagnvart þeirri stofnun. (SGuðm: Þú ert að snúa út úr, Bjarkey.) — Nei, þú spurðir (SGuðm: … snúa út úr.) hvort Byggðastofnun væri fær, hv. þingmaður, til þess að taka út þar sem hún væri einn af eignarhlutum í N4.