fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hversu sterkt maður á að taka hérna til orða en ég held að það liggi a.m.k. fyrir að það voru mjög misvísandi upplýsingar sem bárust, bæði í fjölmiðlum og líka inn í nefndina til að byrja með um hvað stæði til. Það var mjög víða talað um 5 milljarða kr. og þar sem var talað um einhverja dreifingu var talað um það yfir tveggja ára tímabil og það virtist líka vera gefið í skyn, a.m.k. af hæstv. forsætisráðherra þegar hún kom upp í pontu í atkvæðaskýringu — hún vildi meina að hún væri að trompa okkar tillögur. Ég tók hana auðvitað bara á orðinu við það. Svo auðvitað birtast þessar tölur okkur í hv. fjárlaganefnd þar sem við sjáum að nýjar fjárveitingar hljóða upp á 600 millj. kr. Auðvitað er hægt að fara í alls konar útreikninga fram og til baka en ég held að flestir í nefndinni, ekki bara 1. minni hluti, hafi áttað sig á því að þær breytingartillögur sem Samfylkingin kom með inn var að sjálfsögðu 3 milljarða kr. ný fjárveiting. Við vorum ekki að telja til baka einhverjar fjölskyldur sem voru ekki í kerfinu. Það sem ég treysti mér til að segja er að þessi framsetning er einstaklega villandi og við í Samfylkingunni hefðum aldrei dregið til baka þessa breytingartillögu og ekki fengið að greiða atkvæði um hana hér í þinginu við 2. umr. ef það hefði legið fyrir að það ætti bara að bæta 600 millj. kr. við barnabótakerfið milli 2022–2023. Það er ástæðan fyrir því að við setjum þessa breytingartillögu aftur inn sem okkur er auðvitað frjálst að gera og við viljum bara kalla eftir sjónarmiðum hv. þingmanns við hana í atkvæðagreiðslu.
Varðandi þessa 2.900 einstaklinga eða fjölskyldur sem er rætt um hjá stjórnvöldum eða hæstv. ríkisstjórn þá er það rétt samkvæmt þeim gögnum sem við höfum fengið að það eru vissulega að bætast inn nýir hópar þarna. En þessar tölur eru samt engu að síður í heildina bara rétt svo að miða við verðlag þannig að það gefur augaleið að heildarupphæðin sem hver og ein fjölskylda er að fá að meðaltali er auðvitað að lækka að raunvirði.