153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:41]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé aðalatriðið að við séum að ræða um umbæturnar og hvernig við ætlum að beita kerfinu og höfum dýpri umræðu um tilgang þessa kerfis. Ég get líka alveg haldið ræður um það að ef við hefðum átt að vinna þetta með ábyrgum hætti þá hefðum við átt að kalla eftir endurmati á þessum útgjaldalið og hvernig þeir peningar væru að ganga út. Það gerðum við ekki, einfaldlega vegna þess að við vissum að á einhverjum tímapunkti þegar við myndum fara yfir í það þá værum við að nálgast kjarasamninga o.s.frv. En ábyrga leiðin, ef við erum bara fjármálatæknileg í þessum stól Alþingis og ég veit að færri skilja okkur þá, hefði verið að endurmeta þessa útgjaldaþörf. Hefðum við komist að því að útgjöldin væru lægri þá hefði átt að fella útgjöldin niður en mögulega taka þau aftur upp í 3. umr. þegar kjarasamningar og aðgerðir lágu fyrir.

Að óbreyttu finnst mér aðalatriðið vera að vegna þróunar mála hefðu útgjöldin í frumvarpinu verið of há. Það er ákveðið að endurskoða kerfið og hækka barnabætur. Það er ákveðið að einfalda kerfið, minnka skerðingar og síðan er ákveðið að auka fjármuni til viðbótar, 600 milljónir, við þá fjárhæð sem búið var að taka frá í frumvarpinu sem lá til umræðu.

Undir lok ræðunnar ræddi hv. þm. Kristrún Frostadóttir um barnabótakerfið og hvernig við hefðum látið það drabbast niður á undanförnum árum. Mér finnst aftur á móti miklu áhugaverðari umræða hvernig við erum að beita þessu kerfi. Á undanförnum árum höfum við einfaldlega reynt að beita þessu kerfi frekar með þeim hætti að beita því niður á við á neðri tekjutíundirnar heldur en að láta það elta upp allan skalann. Ég held að það hafi verið mun ábyrgari stefna að huga frekar að þeim sem lægri höfðu launin heldur en að greiða barnabætur sem elta upp allan tekjustigann. En það er líka bara pólitík og þá má vel vera að aðrir tali fyrir öðrum sjónarmiðum, ég ætla ekkert að gera lítið úr þeim. Í samhengi við aðrar aðgerðir sem við höfum gripið til til stuðnings barnafólki á undanförnum árum þá vil ég til viðbótar skilja eftir þá einu setningu (Forseti hringir.) — afsakið, virðulegur forseti, ég er búinn með tímann — að það er ástæða til að ræða sérstaklega hvernig við höldum utan um og styðjum barnafjölskyldur og ungt fólk sem á börn á Íslandi.

(Forseti (AIJ): Forseti er mjög strangur tímavörður.)