153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:46]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að hefja umræðu í þessari 3. umr. um fjárlögin á nokkrum orðum um vinnubrögð. Ég sit mitt fyrsta haust í fjárlaganefndinni og hef haft mikla ánægju af störfunum þar. Mér hefur fundist samstarfið og samskipti milli meiri hluta og minni hluta vera gott. Það er hins vegar vont að sjá á lokametrum vinnunnar glitta í vinnubrögð sem við ættum öll að forðast. Ég ætla að nefna þrjú dæmi: Að nefndarmenn í fjárlaganefnd lesi um það í fjölmiðlum að framlög til Kvikmyndasjóðs hafi aukist um 150 milljónir. Sömu daga og þær fréttir birtast er ráðherra málaflokksins á verðlaunahátíð í Hörpu. Að það gerist á lokametrunum við afgreiðslu fjárlaga, þar sem hallinn er 119 milljarðar, að tillögur um hækkun tiltekinna veiðigjalda í fiskeldinu eru dregnar til baka með röksemdum sem halda einfaldlega ekki vatni vegna þess að þegar hæstv. matvælaráðherra kom fyrir nefndina var á henni að skilja að þetta væri hennar niðurstaða og hennar tillaga. Allar þær skýringar sem eru lagðar á borð núna um að ekki sé hægt að fara í þennan tekjustofn eru ástæður sem lágu fyrir í haust þegar fyrir þessum hugmyndum var talað. Svo er það síðast en ekki síst það sem við sáum gerast hérna á lokametrunum varðandi framlög til tiltekinna fjölmiðla. Mér finnst þetta vera leiðinlegur blettur á annars góðu ferli og góðri vinnu og vildi svo glöð standa hér og við værum ekki með þessar þessi þrjú skýru dæmi af vinnubrögðum sem eru þinginu að mínu viti bara einfaldlega ekki sæmandi.

Þá að frumvarpinu sjálfu. Ég hef verið í hópi þeirra sem hafa verið að halda því til haga hver staðan er hvað varðar halla. Ég nefndi það í ræðu minni þegar við vorum í 2. umr. að stærsta breytingin á fjárlagaliðum milli 1. og 2. umr. voru útgjöld vegna vaxtagjalda. Sá liður stækkaði meira heldur en aukin framlög til heilbrigðismála. Ríkisstjórnarflokkarnir töluðu stoltir um hraustlega innspýtingu inn í þann málaflokk en hann náði ekki upp í hækkun vaxtagjaldanna. Hér í 3. umr. erum við síðan komin fram með tillögur frá meiri hlutanum um að lántökuheimild ríkissjóðs verði hækkuð úr 220 milljörðum í 240 milljarða. Ástæðan er einfaldlega að útgjöldin kalla á að farið sé í þetta. Það er mjög lítið rætt um það hér í þessum þingsal og mér finnst það umhugsunarvert. Í nefndinni milli 2. og 3. umr. fengum við síðan aðgerðir ríkisstjórnarflokkanna vegna kjarasamninga, hækkun vaxtabóta um 600 milljónir, húsnæðisbætur um 1,1 milljarð og barnabætur um 600 milljónir, allt saman jákvæðar aðgerðir. Við í Viðreisn höfum talað fyrir því að vaxtabætur og húsnæðisbætur þyrftu að hækka vegna verðbólgunnar og vegna hás vaxtastigs. Ég er þeirrar skoðunar að almenningur í landinu eigi ekki einn að axla byrðarnar af því hvert vaxtastigið er hér á landi en það helst auðvitað mjög í hendur við það hvaða gjaldmiðil við erum með. Barnabæturnar eru jákvætt skref en ómarkvisst og ég verð að viðurkenna að ég er í hópi þeirra sem finnst mega segja að það blasi ekki alveg við að ríkisstjórnin sé að ná þessu 5 milljarða marki sem um hefur verið talað.

Mig langar aftur til að tala um það að þegar ríkisstjórnin hóf sitt síðara kjörtímabil þá voru efnahagsaðstæður þær að verðbólgan mældist 4,4%, stýrivextir stóðu í 1,25% en það voru blikur á lofti. Ég held að það megi bara segja eins og er að það hentaði ríkisstjórninni einfaldlega ekki að tala um þessar blikur. Niðurstaðan varð sú að þetta sögulega lágvaxtaskeið sem þá var talað um varði í einhverja fjóra mánuði. Það var nú allt og sumt. Engu að síður var talað um þessa breytingu eins og hún væri komin til að vera, eins og hún væri afleiðing af pólitískri stefnumörkun og ungum fyrstu kaupendum gefið til kynna að þetta fjögurra mánaða lágvaxtaskeið, sem það reyndist vera, væru forsendur til að fara í fasteignakaup á. Þetta er stærsta fjárfesting flestra um ævina og þetta unga fólk finnur fyrir því í dag að þetta skeið varði ekki lengi. Í sjálfu sér er það auðvitað þannig að ekkert í fyrri sögu Íslands gat gefið tilefni til að ætla að vextir myndu haldast þetta lágir eða lágir til lengri tíma. Til þess hefur íslenska krónan einfaldlega ekki styrk og þetta hjal, ekki síst í Sjálfstæðisflokknum og aðallega í Sjálfstæðisflokknum, var óábyrgt.

Nokkur orð um verðbólguna því að allur almenningur finnur ótrúlega fyrir henni, hvort sem er í formi verðs á matvöru, öðru verðlagi sem fer hækkandi eða vegna lánanna. Þar höfum við verið að lýsa eftir því að stjórnvöld, ríkisstjórnin, fari að sinna sínu mikilvæga hlutverki við að halda aftur af verðbólgunni. Við höfum gagnrýnt hana fyrir það hversu fá skref hún tekur og bent á það að fjölskyldur landsins taka reikninginn vegna þessa.

Hæstv. fjármálaráðherra hefur talað um mikilvægi þess að ríkisfjármálin styðji við markmið Seðlabankans um verðbólgu. Hann talar um þetta en ákvarðanir hans spegla ekki þetta mikilvægi eða að á þetta sé lögð áhersla. Það er talað um þetta en skrefin vantar og fyrir vikið er staðan sú að Seðlabankinn er að mestu einn með það verkefni og grípur til vaxtahækkana aftur og aftur. Þegar sama ríkisstjórn fer síðan þá leið að auka byrðar fjölskyldna og heimila með gjaldahækkunum þá er ástæða til að gagnrýna það.

Ég ræddi í 2. umr. um vexti og eins leiðinleg og sú umræða er þá þarf að geta nálgast það samtal sem réttlætismál. Pólitíska spurningin er sú hvernig ríkisstjórnin getur hugsað sér það að leggja það á heimilin í landinu að vera föst í gjaldmiðli sem kostar heimilin sturlaðar upphæðir, sem gerir það að verkum að fólk er að borga íbúðina sína tvisvar ef ekki þrisvar vegna vaxtakostnaðar. Hér í dag var talað um stöðuna erlendis, hver verðbólgan er erlendis, að þar séu vextir líka að hækka, að þar séu skuldir meiri en hér heima. En þá þarf að horfa á það hvað er verið að bera saman, þegar talað er um verðbólgu erlendis og að vextir þar séu að hækka. Hvers vegna þurfa vextir á Íslandi að hækka margfalt? Förum við ekki að nálgast þá stund að ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins fari að horfast í augu við þann kostnað sem fólkið í landinu tekur á sig vegna krónunnar og kostnaðar sem ríkissjóður tekur á sig vegna krónunnar? Það er talað um að önnur ríki skuldi meira en vaxtagjöldin segja söguna af því hvað skuldirnar kosta íslenskan ríkissjóð. Á sama tíma blasir líka við okkur að heilu atvinnugreinarnar eru að yfirgefa erfiðan veruleika íslensku krónunnar. Síðast í gær fékk ég skrifleg svör frá hæstv. viðskiptaráðherra við skriflegri fyrirspurn minni um þetta atriði sem sýndi að það er kannski ekki bara svo að sjávarútvegurinn og stóriðjan hafi yfirgefið gjaldmiðilinn heldur fyrirtæki vítt og breitt um atvinnulífið, 250 fyrirtæki og félög. Viðskiptaráð bregst við með því að tala um að þetta geri fyrirtækin vegna þess að þetta auðveldi þeim samanburð við samkeppnisaðila, þannig að þetta er samkeppnisatriði og þetta auki gagnsæi. En ættu þá önnur fyrirtæki ekki að eiga kost á þessu líka? Ætti það ekki að vera markmið að fyrirtækin á Íslandi sætu öll við sama borð hvað þetta varðar, að þetta væri ekki bara úrræði stóru fyrirtækjanna? Ættum við ekki að vilja halda til haga samkeppnisstöðu allra fyrirtækja á Íslandi?

Ég nefndi í fyrri ræðu minni aðeins fjárfestingar og aðgerðir vegna heilbrigðismála. Viðreisn lagði fram breytingartillögu um 6 milljarða aukin framlög í þennan málaflokk sem var felld. Það er auðvitað miður. Ég hef áhyggjur af því að í þessu fjárlagafrumvarpi eins og það liggur fyrir núna, og er náttúrlega í endanlegri mynd hér í 3. umr., þá blasir við að það er ekki fjármagn til staðar til að fara í það að semja við sérgreinalækna. Það er ekki fjármagn til staðar til að fara í það að semja við sjúkraþjálfara. Það er ekki fjármagn fyrir hendi varðandi það að halda í við sálfræðiþjónustu á heilsugæslum landsins. Það er ekki fjármagn í niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu. Þetta eru grundvallarþættir og grundvallarelement en samningsleysi við lækna og sjúkraþjálfara, þetta aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar hvað það varðar, skilar þessu tvískipta heilbrigðiskerfi sem ég held að allir stjórnmálaflokkar, a.m.k. í orði kveðnu, vilja forðast. Þjóðin er einhuga um það að við höldum í þetta norræna módel um að aðgengi að heilbrigðisþjónustu eigi að vera óháð efnahag. En þegar stjórnvöld ná ekki fram samningum við þessar stéttir er afleiðingin sú að þau sem geta borgað, borgað meira fyrir heilbrigðisþjónustu, fá þjónustu en þau sem geta það ekki þurfa að neita sér um hana. Mér finnst þetta mjög vond niðurstaða í fjárlagafrumvarpi á Íslandi, einu ríkasta landi í heimi, og það er sérstakt að í frumvarpi sem skilar 119 milljarða kr. halla þá takist mönnum samt að fara svona illa með heilbrigðiskerfið.

Í lokin þetta: Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla frá árinu 2019. Það er vissulega rétt að heimsfaraldur framkallaði skuldir og útgjöld en eftir stendur að ríkissjóður var í mínus og var ósjálfbær áður en heimsfaraldur skall á. Það er líka staðreynd, þó að það hafi pirrað hæstv. fjármálaráðherra þegar það var rifjað upp í dag, að það er samkvæmt fjármálaáætlun stefnt að því að halda hallarekstrinum áfram út árið 2027. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn talar um að honum sé einum treystandi til að fara vel með fjármuni almennings þá þarf að hafa þetta í huga; níu ár samfleytt af hallarekstri. Mér finnst það illa gert gagnvart næstu kynslóð því það er hún sem tekur reikninginn.

Ég hef farið yfir nokkrar athugasemdir mínar við þetta fjárlagafrumvarp og ætla að fá að loka með sama hætti og ég hóf mál mitt; að mér fannst dapurlegt að verða vitni að þessum vinnubrögðum í blálokin. Það er staðreynd að þetta fjárlagafrumvarp hefur meiri þýðingu en oft áður og þess vegna skiptir máli að halda vel á málum. Ég sakna þess mikið að hér birtist enginn kjarkur til að taka markviss skref um hagræðingu. Það er mikið einkenni á þessu máli. Það er mikið hagsmunamál fyrir allan almenning í landinu að lækka kostnað á skuldum svo hægt sé að verja fjármunum í aðra og skemmtilegri hluti og byggja upp til framtíðar. Þannig verjum við lífskjörin á Íslandi. Þannig verjum við velferðina og þannig verjum við samkeppnishæfni íslensku þjóðarinnar.