153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:04]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Mér fannst ágætt að nálgast verkefnið í fjárlaganefndinni þannig að jú, þessi umræða getur mjög auðveldlega orðið brjálæðislega tæknileg og leiðinleg en hin hliðin er kannski sú að við erum sjaldan að horfa jafn skýrt á grundvallarelementin í pólitík og þarna, t.d. varðandi skattana. Það segir ofboðslega mikla sögu af pólitískri hugmyndafræði hvernig stjórnvöld beita sköttum, hverja þau skatta og hvernig þau skatta og hverja þau skatta ekki. Útgjöldin gera það líka. Erum við að fara með útgjöldin inn í velferðina eða eru það aðrir þættir sem telja meira? Núna kannski finnst manni að heimsfaraldurinn sé farinn af sviðinu og að við ættum að vera að tala meiri pólitík hér og þegar maður talar um hallann og allt þetta þá held ég að megi líka horfa á þetta bara í einfaldari og smækkaðri mynd. Hvaða heimili þolir það að reka sig svona til margra ára, alltaf í mínus? Í sjálfu sér er sagan ekkert miklu flóknari en það. Auðvitað er þetta einföldun en grunnprinsippið alltaf það sama.

Hv. þingmaður spyr um evruna og önnur ríki. Auðvitað er gjaldmiðillinn, hvort sem gjaldmiðillinn heitir króna eða evra, ekki eina svarið og gjaldmiðill er heldur aldrei nein töfralausn. Það breytir því auðvitað ekki hver gjaldmiðillinn er ef við erum með stjórnvöld sem fara alltaf illa að ráði sínu, gæta aldrei hagsmuna almennings með því að reyna að vera sirka á pari varðandi tekjur og útgjöld. En það hefur hins vegar alveg áhrif á Íslandi að vera með örmynt, örgjaldmiðil sem er viðkvæmari fyrir öllum sveiflum. Það hefur áhrif og birtist t.d. ungu fólki með þeim hætti sem við þekkjum, hvað það er brjálæðislega erfitt að eignast fyrstu íbúð og hvaða lánskjör okkur bjóðast.