fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta voru skýr svör og það þarf ekki alltaf að hafa þetta svo ógeðslega tæknilegt. Það þarf ekki alltaf að hafa þetta svo ótrúlega erfitt, það þarf ekki alltaf að hafa þetta svo ótrúlega óaðgengilegt. Þetta er eitthvert svona element, afsakið forseti, þetta er eitthvert dæmi í stjórnmálum að gera umræðuna svo ótrúlega erfiða að fólk geti ekki komið sér inn í þetta.
Hv. þingmaður nefndi stöðu ungs fólks núna og hvernig það er fyrir ungt fólk að reyna að koma sér inn á fasteignamarkaðinn í dag. Jú, það er vissulega mjög erfitt. Eins og ég talaði um í 2. umr. hefur núverandi ástand slæm áhrif á tvo hópa. Annars vegar fólk sem er nú þegar búið að kaupa sér fasteign en fastir vextir lækka ekki nógu snemma, eða eitthvað svoleiðis, eða út af stýrivaxtahækkunum þá náttúrlega — ég held að greiðslubyrði venjulegra lána hafi tvöfaldast frá því að lánin voru sem lægst. Síðan er hins vegar fólk sem er í slæmri stöðu fjárhagslega til að koma sér á fasteignamarkaðinn af því að verðið er orðið svo ótrúlega hátt. Þannig að alveg sama hvar við horfum, fólkið sem hefur það gott hefur það samt líka einhvern veginn skítt á sama tíma, heimilin eiga erfitt með að standa undir sér og eiga erfitt með að reka sig.
Það gladdi mig mikið að heyra hv. þingmann tala um gjaldmiðilinn og ég er sammála hv. þingmanni um að gjaldmiðillinn sé ekki svarið. En maður hugsar náttúrlega líka bara: Á hvaða sviðum eigum við að grípa til aðgerða til þess að reyna að sporna við íþyngjandi áhrifum verðbólgunnar á almenning í landinu? Þetta eru allt mjög áhugaverðir punktar sem komu fram í svari hv. þingmanns og ég þakka henni innilega fyrir að útskýra þetta á mannlegan hátt.