fjárlög 2023.
Forseti. Kannski er það til marks um hvað umræðan um efnahagsmál, um fjárlögin, um ríkisfjármálin er tæknileg að þegar ég tók sæti í fjárlaganefndinni þá fékk ég tölvupóst með orðasafni með hugtökum og skilgreiningum þar að baki. Því fylgdi sérstakt orðasafn að sitja í þessari nefnd.
En ég er sammála því sem hv. þingmaður nefnir varðandi hópana tvo, ekki síst hjá ungu fólki, annars vegar þá sem núna eru að glíma við hærri lán, búnir að kaupa. Ég fékk einmitt gögn um þetta inn í fjárlaganefndina, það eru 27% lántakenda, fjórðungur allra þeirra sem eru með lán á íbúðunum sínum, sem eru með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum. Þetta er fólkið sem er að taka á sig vaxtahækkanirnar af fullum þunga. Þetta er langtum stærri hópur en mig hefði grunað og svo bætist við þarna einhver stokkur sem losnar á næsta ári og eftir tvö ár. En síðan er hinn hópurinn sem kemst í þessu umhverfi einmitt ekki inn á markaðinn, getur ekki keypt. Það er afleiðingin af þessu.
Varðandi gjaldmiðilinn þá ítreka ég það, þetta er ekki eina svarið en stórt svar fyrir Ísland, af því að þessu myndi líka fylgja krafa um að sýna meiri ábyrgð, þannig að ég held að í svona fjárlagapólitík eigum við auðvitað að vera að horfa á fjárlög þessa árs en líka að leyfa okkur að horfa lengra fram í tímann, að við séum að tala um grundvallarhugmyndir, grundvallarpólitík og líka framtíðarsýnina, svar um það í hvernig samfélagi við viljum við búa, hvaða aðstæður við viljum bjóða fólkinu í landinu, hvaða þjónustu við viljum tryggja, hvernig við ætlum að afla tekna og hvernig við ætlum að reka þetta heimili sem samfélagið er í reynd.