fjárlög 2023.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Lenyu Rún Taha Karim fyrir áhugaverða ræðu. Hún kom að mjög mörgum punktum sem fram hafa komið í þessari umræðu hér í dag og snúa að aðkallandi vandamálum og áskorunum sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir en hefur ekki svigrúm til að sinna vegna þess takmarkaða svigrúms sem ríkissjóður hefur vegna þeirra gríðarháu vaxtagjalda og vaxtaútgjalda sem ríkissjóður þarf að standa straum af.
Í ræðu hv. þingmanns hjó ég eftir áhyggjum hennar af því hvernig vaxtahækkanir bitna á ungu fólki. Það held ég að sé rétt. Raunar hefur fyrirkomulag íbúðalána á Íslandi að mestu skýlt mörgum kynslóðum fyrir beinum áhrifum af vaxtahækkunum en nú hefur orðið breyting þar á. Nú er hópur ungs fólks sem ber þessar byrðar og við getum sagt að það sé mjög gott að nefna þennan hóp hér þegar við erum að tala um fjárlög af tveimur ástæðum. Annars vegar þeirri að há vaxtagjöld ríkisins takmarka getuna til að bregðast við vandamálum þessa fólks og koma til móts við það með einhverjum hætti og í öðru lagi þá leggur aðhaldsskortur í ríkisfjármálum enn þá meiri byrðar á Seðlabankann að viðhalda stöðugleika, sem þýðir auðvitað enn meiri álögur á þennan útsetta hóp og því þakka ég hv. þingmanni fyrir ábendinguna.