153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:45]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Daða Má Kristóferssyni fyrir seinna andsvarið. Ég ætla líka að fá að þakka fyrir það að fá tækifæri til að koma aðeins nánar inn á sálfræðiþjónustu og skort á henni. Við erum með grein í stjórnarskránni, 76. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem stendur, með leyfi forseta: „Öllum […] skal tryggður réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku …“, og svo er þetta einhver svona upptalning.

Ég vil meina að það að við séum að gera sálfræðiþjónustuna svona ótrúlega óaðgengilega sé bara brot á ákvæði stjórnarskrárinnar. Þetta er sjúkdómur og telst vera veikindi. Jafnvel þótt hann sé ekki jafn sýnilegur og t.d. líkamlegir örðugleikar sem fólk er að glíma við þá er það samt sem áður svo ótrúlega mikilvægur þáttur í heilsufari einstaklings að vera andlega heilbrigður. Það gerir svo ótrúlega mikið fyrir mann. Þetta er eitthvað sem ég hef verið að leggja mikla áherslu á, enda höfum við verið að afgreiða mál úr velferðarnefnd hvað varðar t.d. endurhæfingarlífeyri fyrir fólk sem er í endurhæfingu og þetta hefur náttúrlega verið rosalega mikið í umræðunni. Ég var ekki einu sinni komin í framboð þegar þingsályktunartillaga Viðreisnar kom fram í janúar 2021, minnir mig, um að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Það er ekki einu sinni gert ráð fyrir þessu í fjárlögum fyrir árið 2023, þannig að ef þetta er ekki á dagskrá fyrir árið 2023 verður þetta þá á dagskrá 2024 eða þurfum við að halda áfram að ýta eftir þessu eins og ég veit ekki hvað? Þetta er orðið svo óþolandi út af því að þetta er svo nauðsynlegt. 22.000 kall fyrir klukkutíma þjónustu er bara fáránlegt. Nú var ég að glíma við veikindi og ástæðan fyrir því að ég náði svona ótrúlega langt niður var út af því að ég var alltaf að fresta því að fara til sálfræðings. Ég var bara: Nei, ég er stúdent og hef ekki efni á þessu. Ég var náttúrulega í fullu námi og þetta er bara ótrúlega skýrt dæmi um það hvað það getur haft mikil áhrif á manneskju að geta ekki sótt sér þessa þjónustu sem er stjórnarskrárvarinn réttur.