153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Ég byrja á því að mæla fyrir breytingartillögu sem ég er með um heiðurslaun listamanna, að við listann bætist eftirfarandi nöfn: Lárus Blöndal og Jón Gunnar Jónsson. Tillagan felst í því að þeir bætist við og séu nr. 26 og 27 á lista yfir þau sem hljóta heiðurslaun listamanna. Ég geri þessa tillögu einfaldlega vegna þess að það hefur verið sagt að það sé list að selja banka, ekki vísindi. Ég legg til að þingið hafni þessari tillögu og ég legg það í hendur þingsins að dæma um hvort það hafi verið list eða vísindi. Sjáum til hvernig sú atkvæðagreiðsla fer. Ég vonast eftir mjög rauðum vegg, bara til að hafa það alveg skýrt. Það væri kannski fyrsta breytingartillagan sem um getur sem enginn styður. Það verður áhugavert að sjá allavega. Ég hlakka til þess.

Að öðru leyti fjalla ég um tvö atriði í nefndaráliti mínu. Til að byrja með er það þessi blekkingaleikur með barnabæturnar sem hefur komið fram vegna kjarapakka ríkisstjórnarinnar. Þetta er í annað skipti sem við fáum svona kjarapakka þar sem er verið að setja fyrri loforð í nýjar umbúðir og reyna að gefa fólki sama pakkann aftur. Í lífskjarasamningunum kynnti ríkisstjórnin allt sem hún ætlaði að gera fyrir alla í þeim samningum en það voru bara allt tillögur sem höfðu þegar komið fram í fjármálaáætlun, þannig að það var verið að selja fólki sömu hækkunina aftur og aftur.

Við erum að upplifa það aftur hérna. Nánar tiltekið þurfum við að skoða dálítið samhengið í þessu til að átta okkur á því hvernig þessi blekking virkar. Í fjárlögum 2021 kemur fram að áætlaðar barnabætur fyrir árið 2023 verða 13,965 milljarðar. Það eru sem sagt rétt tæpir 14 milljarðar — á verðlagi ársins 2021, við skulum hafa það á hreinu. Verðbólga ársins 2022 er áætluð 8,2% sem þýðir að með sömu áætlun um verðbætur fyrir árið 2023, á verðlagi ársins 2022, ætti þetta að vera 15,1 milljarður. Gert er ráð fyrir því að verðbólga næsta árs verði 5,6% sem þýðir að verðlagsuppfærðar barnabætur fyrir árið 2023 ættu að vera 15,956 milljarðar, eða rétt tæplega 16 milljarðar, til að halda í verðgildi áætlunar um barnabætur sem gert var ráð fyrir árið 2021. Í fjárlögum 2021 var lofað að barnabætur árið 2023 yrðu þessar. Þetta er loforðið. Við vitum öll að barnabætur virka á þann hátt að ef ekki eru gerðar kerfisbreytingar, skerðingarmörkin eða viðmiðunarmörkin eru ekki hækkuð o.s.frv., þá úreldast bæturnar. Fólk er að semja um kaup og kjör og hækka í launum, það er verðbólga og ýmislegt svoleiðis og ef skerðingarmörkin eru ekki lagfærð, alveg eins og í almannatryggingakerfinu eða atvinnuleysisbótum o.s.frv., ef það er ekki verið að lagfæra tölurnar eftir því sem á líður, þá úreldist kerfið. Fleiri og fleiri skerðast út úr því sjálfkrafa ef það er ekki uppfært. Loforðið sem var gefið 2021 um að það yrðu 14 milljarðar í barnabótakerfinu á verðlagi ársins 2021 er því loforð um verðmæti. Hvernig kerfið er þar á bak við skiptir ekki máli. Það er hægt að hafa marga sem fá lítið í barnabætur eða fáa sem fá mikið í barnabætur. Það var lofað verðmætum upp á 14 milljarða. Á andvirði næsta árs eru það 16 milljarðar.

En hvert er samhengið í þessu? Á næsta ári verða þetta ekki 16 milljarðar með þessu kjaraútspili ríkisstjórnarinnar, þetta verða rétt um 15,5 milljarðar, tæplega það meira að segja, og eiga að verða 15,9 milljarðar árið 2024, ári seinna, á nýju verðlagsuppfærsluverði sem verður lægra heldur en búið var að lofa 2021. Þetta eru verðmæti. Ríkisstjórnin segir: Við lofuðum 14 milljörðum 2023 en við uppfærðum ekki nægilega vel barnabótakerfið þannig að fleiri og fleiri skertust frá því. Þá minnkaði alltaf peningurinn sem fór í barnabæturnar af því að þau höfðu bara ekki fleiri tekjuviðmið til að ná upp í alla 14 milljarðana. Núna er verið að laga kerfið þannig að það fari upp í það sem var búist var við að verðmæti kerfisins væri og meira að segja tæplega það. Og þetta kallar á hækkun. Þetta er rangt. Þetta er loforð sem var gefið fyrir nokkrum árum um ákveðið verðmæti en það er búið að leyfa þessu að drabbast niður eins og húsi sem eyðileggst. Nú er verið að gera það upp en það er ekki einu sinni gert upp í það ástand sem var búið að lofa. Þetta er blekkingaleikurinn með barnabæturnar.

Þegar ég spurði hæstv. forsætisráðherra í dag í óundirbúnum fyrirspurnum hvort væri heiðarlegra að segja — vissulega er tæknilega rétt að af því að búið er að leyfa barnabótakerfinu að drabbast niður og það hefur ekki verið uppfært um hver áramót og er komið niður í tæpa 11 milljarða þá mun það hækka upp í tæpa 16 milljarða, vissulega verður 5 milljarða kr. hækkun. Það er alveg rétt að tæknilega séð er það rétt. En ef við skoðum þetta í samhengi þá var búið að lofa því að þetta yrðu 16 milljarðar á núvirði næsta árs. Er þá réttara að segja: Við erum að hækka þetta um 5 milljarða? Eða er réttara að segja: Þetta eru þessir 16 milljarðar sem við lofuðum fyrir nokkrum árum? Erum við að leiðrétta í áttina að fyrra loforði eða erum við að hækka um 5 milljarða af því að við leyfðum öllu að drabbast niður? Hæstv. forsætisráðherra gat ekki svarað þeirri spurningu og eins og venjulega fór hún bara að svara einhverri allt annarri spurningu. Mjög klassískt, rosalega klassískt hjá þessari ríkisstjórn að svara ekki beinum spurningum, að geta ekki svarað heiðarlega heldur verða alltaf að setja hlutina í einhvern nýjan búning til að þeir líti vel út. Það er allt innantómt í þessu.

Við fáum alltaf sömu loforðin aftur og aftur, sett í einhverjar nýjar umbúðir en eru bara það sama og síðast. Og það er kallað hækkun, það er kallað efling: Við ætlum að efla heilbrigðiskerfið. En þegar nánar er skoðað: Nei, fyrirgefðu, 12,2 milljarðar í viðbót eru ekki 12,2 milljarðar í viðbót, það er bara einfaldlega það sem þarf til að viðhalda sama þjónustustigi. En þetta lítur út fyrir að vera 12,2 milljarða kr. hækkun af því að þið settuð fram fjárlagafrumvarp í haust sem var vanfjármagnað. Það var bara einfaldlega mínusað fullt af útgjöldum sem nauðsynlega þurfti eins og lyfjaútgjöldum. Við vitum öll að það þarf að borga fyrir lyfin. Við gátum ekki sagt: Nei, fyrirgefðu, stopp, allur peningurinn fyrir lyfjum er búinn. Við borguðum hann eftir á. Þannig að þegar það var raunuppfært hvað þyrfti mikið af peningum í lyf og ýmislegt annað þá bættust við 12,2 milljarðar. Ef fólk hefði verið heiðarlegt í haust með þetta hefðu fjárlög verið 12,4 milljörðum hærri. Vandinn sem við glímum við í þessu fjárlagafrumvarpi er að þetta er innantómt plagg þar sem eftir á er komið með einhverja plástra og þeir plástrar eru kallaðir hækkun, þeir plástrar eru kallaðar efling heilbrigðiskerfisins, þeir plástrar eru kallaðir kjarabætur vegna kjarasamningana, nákvæmlega eins og var gert í lífskjarasamningunum. Sömu loforðin eru endurnýtt og það er bara, afsakið, herra forseti, það er óheiðarlegt og við verðum að gera meiri kröfur til ríkisstjórnarflokkanna um að segja hlutina skýrar og heiðarlegar. Þau skrifa nú einu sinni sjálf undir það plagg sem heita siðareglur ráðherra um að þeir eigi að koma fram á heiðarlegan og sanngjarnan hátt. Að segja síðan svona, mér finnst þetta óþolandi, gersamlega óþolandi.

Svo fjalla ég um blekkingarleik stofnframlaganna. Um stofnframlög vegna húsnæðis má segja svipaða sögu. Í nefndaráliti meiri hlutans segir, með leyfi forseta:

„Þar má nefna að heildarumfang stofnframlaga til að auka framboð íbúða í almenna íbúðakerfinu verða samtals 4 ma.kr. á næsta ári.“

Svo að ég beri loforð um húsnæðisframlag saman við stofnframlögin, eins og ég gerði með barnabæturnar, þá er í fjárlögum 2021 gert ráð fyrir því að á hverju ári fari um 4 milljarðar í stofnframlög, nema árið 2023 en þá lækki stofnframlögin í 1,7 milljarða. Og vitið þið hvað? Það er upphæðin sem var stungið upp á í fjárlögunum núna í haust, ekki verðlagsuppfærð. Það eru bara 1,7 milljarðar, gjörið svo vel. Samhliða framlagningu frumvarpsins fáum við óljósar útskýringar á því að það sé einhver peningur í varasjóðnum fyrir húsnæðiskerfið. Við vitum ekki hversu mikið, okkur er ekki sagt hversu mikið en að lokum er dregið upp úr hattinum fyrir 3. umr. að þetta séu 1,7 milljarðar aukalega. Hvernig þeir dreifast er frekar óljóst eins og er af því að okkur er líka sagt að þarna séu u.þ.b. 2 milljarðar frá síðasta ári sem nýttust ekki í stofnframlagakerfið og að fyrir því sé fullt af ástæðum. Ríkisstjórnin þarf einfaldlega að svara skýrar hverjar þær eru. Lokapunkturinn í þessu er að það er verið að millifæra á milli ára og segja: Nú erum við með 4 milljarða, ekki þessa 4 milljarða sem við notuðum síðast heldur bara helminginn af þeim og við ætlum að nota þá í ár og kalla það líka hækkun. Jú, jú, tæknilega séð, miðað við loforðið 2021 um 1,7 milljarða, þá er vissulega búið að hækka en það er ekki búið að ná að klára að nota þau framlög sem var gert ráð fyrir á árunum á undan.

Ég harma að meiri hluti fjárlaganefndar taki undir framsetningu ríkisstjórnarinnar í þessum málum því að það er mikilvægt að greina rétt og heiðarlega frá samhengi tillagna sem þing á að greiða atkvæði um. Í þessum tveimur málum verða greidd atkvæði um hvort eigi að standa við þegar gefin loforð vegna barnabóta annars vegar og hins vegar hvort það eigi að hætta við loforð um lækkun á stofnframlögum til húsnæðismála. Það er sjálfgefið að standa við loforð um barnabætur og það getur enginn hrósað sér fyrir slíkt. Það má hins vegar hrósa stjórnvöldum fyrir að hætta við lækkun á stofnframlögum þó að á sama tíma megi benda á að ekki séu enn komnar neinar lausnir við vandanum á húsnæðismarkaði. Að hætta við að lækka er ekki lausn og kemur a.m.k. ekki í veg fyrir að stjórnvöld geri aðstæður verri.

Staðan er sú að við spyrjum: Hvað veldur því að ekki er hægt að nota þessi stofnframlög? Og þá fáum við: Það er ekki nægilega mikið af byggingarhæfum lóðum. Og við klórum okkur í hausnum því að við sjáum t.d. skýrslur sem óháðir aðilar hafa gert fyrir Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þeir hafa tekið út öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, þeirra áætlanir, aðalskipulag o.s.frv. Hversu margar íbúðir eru tilbúnar, hversu margar lóðir eru tilbúnar og hversu margar íbúðir komast fyrir á þeim lóðum? Það eru 14.000 íbúðir sem eru tilbúnar til byggingar, búið að samþykkja, búið að klára allt skipulag og allt svoleiðis. Það er bara: Gjörið svo vel, hér eru lóðir, hér eru 14.000 íbúðir, byrjið að byggja. Verktakarnir koma og segja: Þetta er ekki byggingarhæft.

Hverjum eigum við að trúa? Hver á að segja okkur hvor er í rauninni bara að ljúga að okkur? Eru sveitarfélögin að ljúga því að okkur að þetta séu byggingarhæfar lóðir? Eru verktakarnir að ljúga að okkur að þetta séu ekki byggingarhæfar lóðir? Ég lít svo á að það sé ríkisstjórnin sem eigi að ganga í það að upplýsa um það skýrt og skorinort. Hér hefur ítrekað verið talað um að lóðaskortur sé vandamálið. Þá er yfirleitt bent á Reykjavík hvað það varðar. Þegar nánar er athugað stenst sú skoðun ekki. Ástæðurnar fyrir því að ekki hafa verið byggðar ákveðið margar íbúðir hafa verið fjölbreyttar, þar á meðal eru helst tvær ástæður sem þarf að skoða betur. Annars vegar er það að bankarnir lánuðu á vissum tímum ekki nægilega mikið til framkvæmda og hin útskýringin, sem er kannski alvarlegri, er að framkvæmdaraðilar sátu á lóðum og voru ekki að byggja á þeim. Það ætti að segja okkur að það séu byggingarhæfar lóðir sem eru tilbúnar til þess að byggt verði á þeim en einhverra hluta vegna segja þeir sem hafa byggingarréttinn á þeim lóðum bara: Nei, við ætlum ekki að byggja á þeim.

Hverjir hagnast á því að viðhalda slíkri skortstöðu? Kannski nákvæmlega sömu aðilar og eiga byggingarleyfið. Kannski eru þeir með byggingarleyfi víðs vegar og ef þeir byggðu allt í einu eða mikið í einu þá væri ekki sama skortstaða á markaðnum og íbúðaverð myndi ekki hækka eins mikið og þá myndu þeir í rauninni ekki græða eins mikið. Er þetta málið? Ef þetta er málið þá er það rosalega alvarlegt. Því er svona hvíslað að manni að sveitarfélögin hafi möguleg lagaleg úrræði til að bregðast við þessu en séu ekki nógu örugg með að nýta þau. Þau hafi ekki viljað ganga það langt. Það er sem sagt ákveðinn lagalegur vafi hvort sveitarfélögin geti gert eitthvað í því þegar framkvæmdaraðilar segja: Nei, við ætlum ekki að byggja. Við ætlum senda, eins og reglur gera ráð fyrir, skipulag, tillögur að því hvað við ætlum að byggja — sem allir vita að verður hafnað af því að það gengur gegn deiliskipulaginu. Þá fá þeir sjálfkrafa nei, þá fá þeir lengri tímafrest til að koma með nýjar tillögur og ekkert gerist í endalaust langan tíma.

Ef þetta er vafinn, ef það er bara þessi svindlvél sem er í gangi, þá er það ríkisstjórnin sem þarf að ganga í það verk að koma með tillögur að lagfæringum lagalega séð til þess að það sé skýrt að ekki sé hægt að svindla svona á kerfinu og halda skortstöðu á markaði. En nei, við fáum bara sömu stofnframlög og hafa alltaf verið, loforð um að það séu einhverjir samningar í gangi við sveitarfélögin um að byggja 35.000 íbúðir á næstu tíu árum — sem sveitarfélög voru hvort eð er búin að setja í sínar áætlanir. Það sem kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er að á næstu tíu árum séu sveitarfélögin búin að gera ráð fyrir því að byggja 35.000 íbúðir en bætt er við að það muni ekki ná upp í óuppfyllta íbúðaþörf. Svo kemur ríkisstjórnin og segir: Við ætlum að koma og hjálpa til við að byggja 35.000 íbúðir. Þá klóra menn sér að sjálfsögðu í hausnum: Fyrirgefðu, hvað með óuppfylltu íbúðaþörfina? Ætlið þið þá ekkert að gera í henni? Ætlið þið að viðhalda skortstöðunni á markaðnum næstu tíu árin? Svarið virðist bara vera já. Við fáum allavega ekki skýrt svar við því þannig að þau forðast að svara þessu og maður getur ekki séð neitt annað en að það sé nákvæmlega það sem þau eru að gera.

Hvernig hjálpar það, eða hjálpar ekki? Það hjálpar að sjálfsögðu alls ekki þeim sem eru reyna að komast inn á húsnæðismarkað en það hefur ákveðin efnahagsleg áhrif sem við þurfum að passa okkur á. Þegar íbúðaverð hækkar hefur það rosalega jákvæð áhrif á skuldastöðu heimilanna. Lánin hækka ekkert sérstaklega mikið, vissulega eitthvað út af verðbólgunni sem þetta veldur líka en ekki eins mikið af því að verðbólgan er víðtækari heldur en bara þróun á húsnæðismarkaði. Þegar húsnæði hækkar um heilan helling þá hækka lánin ekki alveg eins mikið hlutfallslega. Ef við tökum 80% lán á móti íbúð sem hækkar miklu hraðar heldur en lánið þá erum við allt í einu komin með miklu verðmætari eign heldur en lánið. Þá hefur viðkomandi í rauninni eignast heilan helling í íbúðinni miðað við lánið en ekki miðað við húsnæðismarkaðinn því að ef viðkomandi þarf að selja húsnæði sitt og kaupa nýtt þá eru það bara skipti. Þá selur hann dýrt hús en þarf að kaupa líka dýrt hús í staðinn. Það munar engu fyrir þann sem ætlar bara að eiga þak yfir höfuðið en munar að sjálfsögðu rosalega miklu fyrir þá sem ætla að koma inn á húsnæðismarkaðinn. Hækkandi húsnæðisverð á hverju ári gerir það að verkum að það þarf að safna meira og meira fyrir innborgun.

Fólk er í rauninni að elta sitt eigið skott einhvern veginn, bara hring eftir hring, til að reyna að ná innborguninni sem hækkar um 10% á hverju ári og það nær henni aldrei af því að það þarf að leggja ansi mikið til hliðar í hverjum mánuði til að halda í við þær hækkanir sem hafa verið á undanförnum árum. En í efnahagsreikningnum kemur þetta rosalega vel út. Hlutfallslegar skuldir heimilanna miðað við eignir hafa lækkað og þá getur ríkisstjórnin montað sig af því: Sjáið skuldastöðu heimilanna, hún er frábær. En hvaða afleiðingar eru af því? Er það í alvörunni efnahagsstefnan sem ríkisstjórnin rekur að halda viljandi skortstöðu á húsnæðismarkaði til þess að hækka íbúðaverð til að búa til betra hlutfall milli skulda heimilanna og eigna þeirra? Í alvöru? Það fyndist mér rosalega óheiðarlegt og í rauninni rosalega lélegur plástur á efnahagsástandið, til að laga það útlitslega séð eins og svo margt annað áður. Áfram eru fyrstu kaupendur í vandræðum. Þá kemur ríkisstjórnin með aðstoð fyrir fyrstu kaupendur sem ýtir enn þá meira undir hækkanir á húsnæðisverði og vítahringurinn heldur áfram. Það er ekki hægt að bremsa þetta af því að þá fellur allt um sjálft sig.

Það er búið að búa til bólu, það er einfaldlega þannig. Og hvernig á að stoppa eða hægja á þeirri bólu þannig að efnahagurinn nái jafnvægi í þessu gríðarlega stóra húsnæðiskerfi sem er búið að búa til, þessu útblásna kerfi? Það er bara rosalega erfið spurning sem við erum ekki að fá svar við frá ríkisstjórninni. Fyrsta lausnin er og verður alltaf að eyða óuppfyllta húsnæðisskortinum. Það er eina leiðin til þess að ná jafnvægi og koma í veg fyrir bólumyndun — punktur. En við sjáum ekkert svoleiðis. Við sjáum bara þennan blekkingaleik þar sem sífellt er verið að endurnýta sömu loforðin og bara gaslýsa um hvað sé í rauninni verið að gera. Það er ekki verið að hækka barnabætur, það er bara verið að hafa þær eins og var búið að lofa að hafa þær. Það er í rauninni ekki verið að hækka stofnframlögin. Þau nýttust ekki af því að það hefur ekki tekist að gera neitt í húsnæðismálum á undanförnum árum. Við erum búin að vita af þessum vanda í mörg ár, það er bara ekki búið að gera neitt í því. Þetta er bara tilfærsla á milli ára þegar allt kemur til alls. Það er a.m.k. ekki verið að gera hlutina verri með þessu akkúrat eins og er en þetta er engin leið í átt að lausn.