fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni Sambands íslenskra sveitarfélaga þá nam kostnaður sveitarfélaganna við málaflokk fatlaðs fólks 14,2 milljörðum á árinu 2021. Hvað verður það þá 2022? Við vitum það ekki. Verða það 15 eða 16 milljarðar? Síðan er verið að gera kjarasamninga. Það er verið að setja inn í þetta 5 milljarða. Maður veltir því fyrir sér: Er fólk í afneitun? Ég hlustaði líka á orðræðuna sem var hér í dag og ég er búinn að heyra hæstv. fjármálaráðherra halda því fram ítrekað að sveitarfélög séu búin að hækka laun allt of mikið. Sá hópur sem er að sinna þessum málaflokki er örugglega lægst launaði hópurinn hjá sveitarfélögunum og þeir sem eru lægst launaðir á Íslandi eru væntanlega starfsmenn sveitarfélaga. Þannig að ég næ ekki alveg utan um þetta. Þegar kostnaður sveitarfélaganna nam 14,2 milljörðum árið 2021, hver verður hann árið 2023? Verður hann 5 milljarðar? Nei, hann verður það ekki. Alveg frá því á árinu 2018, þegar lögum um fatlað fólk var breytt, var uppsafnaður kostnaður 30 milljarðar. Og í umsögninni um fjáraukann benti Samband íslenskra sveitarfélaga á að það skorti upp á framlag frá ríki til sveitarfélaga vegna þessa uppsafnaða halla. En hvað gerist? Hv. þingmaður situr í fjárlaganefnd. Var þetta eitthvað til umræðu í fjárlaganefndinni og kom eitthvað til greina að bæta inn í þetta vegna þessa uppsafnaða halla sem sveitarfélögin eru núna að glíma við og kemur svo sannarlega niður á annarri þjónustu sveitarfélaganna?