153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[18:38]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Nei, það var ekki fjallað um þetta í fjárlaganefnd fyrir utan yfirferð á þeirri skýrslu sem var gerð um kostnaðinn á málefnum fatlaðra vegna laganna frá 2018, vegna þess að það var ákveðið að fjármagna þessa 5 milljarða, sem ríkisstjórnin ákvað að styrkja sveitarfélögin um, í gegnum tekjuskattinn. Þannig að það var í efnahags- og viðskiptanefnd sem var fjallað um þá tekjuyfirfærslu, án þess að þetta væru þá útgjöld sem væri fjallað um í fjárlögum. En það var fjallað um skýrsluna og kostnaðinn almennt séð, kostnaðinn við lögin frá 2018. Það er í raun á forræði bæði velferðarnefndar og fjárlaganefndar; að athuga í velferðarnefnd hvort lögin séu að skila sínu og í fjárlaganefnd hvernig fjármögnuninni er háttað. Fulltrúar fjármálaráðuneytisins koma til fjárlaganefndar og segja að það séu 5 milljarðar sem eigi að setja í þetta, ekki á árinu 2022 þegar kostnaðurinn er tvímælalaust meiri en það, heldur á árinu 2023. Það var ekki gert ráð fyrir þessu í fjáraukalögunum þrátt fyrir að þetta væri vanfjármagnað og þrátt fyrir að t.d. lífeyrisaukasjóðurinn, sem var líka vanfjármagnað vandamál — þar var viðurkennt að það væri nú sanngjarnt að bæta hann upp, þá voru settir 14 milljarðar þangað, merkilegt nokk. En fulltrúar fjármálaráðuneytisins sögðu að þarna væru sveitarfélögin að glíma við útgjaldavanda og viðurkenndu þannig ekki 7–8 milljörðum meiri kostnað sem sveitarfélögin hafa lagt í vegna þessa málaflokks af því að það væri útgjaldavandi. Samt erum við með umsögn Reykjavíkurborgar frá því 2018, fyrir frumvarpið þá, þar sem var einfaldlega sagt að ef allir færu í svona einbýli, eins og fólk hefur rétt á í rauninni, þá myndi það kosta 11 milljarða miðað við þau dæmi sem þau voru þá með í rekstri, þannig að þau gátu uppreiknað það, held ég, á mjög málefnalegan hátt án þess að það væri einhver útgjaldavandi þar á bak við.