153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

ríkisendurskoðandi og endurskoðun ríkisreikninga.

573. mál
[19:11]
Horfa

Flm. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, nr. 46/2016. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Tilefni breytinganna er breytt flokkun ríkisaðila í lögum um opinber fjármál. Með frumvarpinu er lagt til að lög um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga endurspegli hina breyttu flokkun ríkisaðila.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Sigmar Guðmundsson Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Orri Páll Jóhannsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.