153. löggjafarþing — 50. fundur,  15. des. 2022.

skattar og gjöld.

579. mál
[19:13]
Horfa

Flm. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld, m.a. á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti og fleira og lögum um virðisaukaskatt auk fleiri lagabálka.

Efnahags- og viðskiptanefnd hefur á haustþingi 2022 haft til umfjöllunar tvö aðskilin frumvörp, annars vegar 432. mál, frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (kaupréttur, mútubrot o.fl.), og hins vegar 328. mál, frumvarp til laga um peningamarkaðssjóði. Vegna umfangs málanna telur nefndin ljóst að ekki muni nást að ljúka efnislegri umfjöllun um þau fyrr en eftir áramót. Þar sem brýnt er að nokkur ákvæði þessara frumvarpa öðlist gildi nú um áramótin telur meiri hluti nefndarinnar æskilegt að leggja fram sérstakt frumvarp þar sem kveðið verði á um nauðsynlegar breytingar. Þannig gefist nefndinni ráðrúm til að ljúka umfjöllun um önnur atriði frumvarpanna á fyrstu vikum vetrarþings 2023.

Svo stiklað sé á stóru um efni þessa frumvarps þá er í 1. og 2. gr. þess lagt til að bráðabirgðaákvæði laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki verði framlengd um tvö ár þannig að þau nái til frádráttar frá álögðum tekjuskatti nýsköpunarfyrirtækja árin 2024 og 2025 vegna rekstraráranna 2023 og 2024. Þar með eiga nýsköpunarfyrirtæki, sem eru eigendur að rannsóknar- eða þróunarverkefnum, rétt á frádrætti frá álögðum tekjuskatti vegna þessara verkefna sem nemur allt að 25–35% af útlögðum kostnaði, allt eftir stærð fyrirtækja, enda sé um að ræða frádráttarbæran rekstrarkostnað í skilningi 1. mgr. 1. tölul. 31. gr. tekjuskattslaga. Þá verður hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti hjá hverju fyrirtæki jafnframt hækkað úr samtals 1.000.000.000 kr. í samtals 1.100.000.000 kr. á árunum 2024 og 2025.

Í 4. gr. frumvarpsins eru lagðar til nokkrar breytingar á bráðabirgðaákvæði XXIV í lögum um virðisaukaskatt, þ.e. breytingar á bráðabirgðaákvæði XXIV í lögum um virðisaukaskatt. Þær breytingar hafa m.a. í för með sér að 20.000 bifreiða fjöldatakmörkun fyrir rafmagns- og vetnisbifreiðar verður felld brott. Þá verði fjárhæðarmörk heimildar til undanþágu frá skattskyldri veltu við sölu á rafmagns- og vetnisbifhjólum innan lands 5.500.000 kr. frá 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023 og skilyrði um að létt bifhjól í flokki I sé skráð í ökutækjaskrá verði fellt á brott.

Loks er í 7. og 8. gr. frumvarpsins lagðar til breytingar, annars vegar á lögum um verðbréfasjóði og hins vegar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða í þeim tilgangi að innleiða 1. gr. tilskipunar (ESB) 2021/2261 Evrópuþingsins og ráðsins frá 15. desember 2021 varðandi notkun rekstrarfélaga á lykilupplýsingaskjölum.

Aðrar breytingar sem gerðar eru með frumvarpi þessu lúta að framlengingu gildistíma laga um fjarskiptasjóð út árið 2023 og einnig tiltekinna lagaákvæða er varða tolla og gjöld, líkt og XXIV. ákvæðis til bráðabirgða í lögum um vörugjald af ökutækjum og bráðabirgðaákvæðis EE í búvörulögum.

Að frumvarpinu stendur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar; sá sem hér stendur og hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hafdís, Hrönn Hafsteinsdóttur og Guðrún Hafsteinsdóttir.

Eitt sem ég vil draga sérstaklega fram hér að lokum, virðulegi forseti, sér í lagi vegna umræðu um hreinorkubíla hér í þessum sal, er að með þeirri breytingu sem lögð er til. Í 4. gr. frumvarpsins er felld brott 20.000 bifreiða fjöldatakmörkun fyrir rafmagns- og vetnisbifreiðar. Hlutdeild nýorkubíla vex jafnt og þétt hérlendis og hefur raunar verið í mjög örum vexti og er það vel. Afnám þessarar takmörkunar er því liður í því að styðja enn betur við orkuskiptin.