tóbaksvarnir.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi orðaskipti. Ég verð að fá að byrja á lokaorðum hans. Auðvitað er það hárrétt að ef fólk pínist bara til þess að hætta að reykja vegna þess að það getur ekki keypt sínar uppáhalds sígó þá er það hið besta mál fyrir lýðheilsu og alls konar. Auðvitað geri ég ekki lítið úr því. Ég er bara ósammála því. Ég er á móti því að maður leyfi sér að hugsa um einhverja svoleiðis aukaafurð í lagasetningu sem er að mínu viti sett með ójafnræði án rökstuðnings. Kemur mögulega eitthvað gott út úr því einhvern tímann? Örugglega, alveg pottþétt. Og ég þykist vita að það eru einhverjir sem bíða bara mjög spenntir eftir þessu banni svo þeir geti kannski loksins hætt að reykja. Hvað veit ég? En hins vegar veit ég það, og ég hnaut einmitt um það í frumvarpinu, sem staðfestir trú mína á því að það séu kannski ekki margir sem hafa reykt margar sígó sem komu að þessari lagagerð, því að það er ekki alveg svo að maður bara skipti úr mentól yfir í ekki-mentól og hvað þá úr ekki-mentól yfir í mentól. En það er önnur saga.
Ég ætla að fá að endurtaka: Auðvitað er alveg jákvætt ef einhverjir hætta að reykja. Við hér megum samt ekki búa til þannig löggjöf. Ef við ætlum að búa til löggjöf í þeim tilgangi að allir hætti að reykja þá skulum við bara gera það. Við tökum ekki einn hóp út fyrir mengi, pínum hann og segjum svo: Þeir hljóta nú að þakka okkur fyrir það að þeir hættu að reykja af því að þeir gátu ekki lengur keypt sínar sígó. Ég er ósammála því, hæstv. ráðherra. Mér finnst að við eigum ekki að vinna þannig. Mér finnst það bara ekki fallegt, ef ég á að segja eins og er. Við erum hins vegar sammála um það að þetta er verkefni hv. velferðarnefndar. Ég fagna því að heyra það á orðum ráðherra að hann tekur undir að þarna sé kannski vert að skoða hversu djúpur og hversu sterkur rökstuðningur fyrir þessu banni er, því að ég ætla að fá að endurtaka: Ég hef kynnt mér þetta talsvert, mér sýnist rökstuðningurinn ekki halda og þá eigum við að standa með því.