stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi á þskj. 679 sem er 537. mál um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006, og fjallar um orkuskipti. Frumvarpið kveður á um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða er lýtur að því að innleiða hvata til orkuskipta báta sem hafa heimild til að veiða með krókaaflamarki, þ.e. fyrir þá sem nýta sér vistvæna orkugjafa. Stjórnvöld ásamt Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi hafa stefnt í sameiningu að a.m.k. 50% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda vegna olíunotkunar íslensks sjávarútvegs frá árinu 2005 til ársins 2030. Losun vegna olíunotkunar fiskiskipa, bæði íslenskra og erlendra, er um 18% af heildarlosun sem er á beinni ábyrgð Íslands og hér er til mikils að vinna.
Samkvæmt drögum að nýrri eldsneytisspá Orkustofnunar mun olíunotkun fiskiskipa við landið minnka um 6% frá árinu 2020 til ársins 2030. Losun frá fiskiskipum myndi þá í heild hafa minnkað um 37% frá árinu 2015, en samdrátturinn er reyndar enn meiri eða 45% ef aðeins er horft til íslenskra fiskiskipa.
Staðan er því sú að það hefur mikill árangur náðst í íslenskum sjávarútvegi en við þurfum að ná mun meiri árangri. Til að hægt sé að ná settum markmiðum stjórnvalda þarf losun gróðurhúsalofttegunda frá sjávarútvegi að minnka enn meira en orkuspá Orkustofnunar gerir ráð fyrir. Enn fremur hefur Alþingi ályktað að hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í haftengdri starfsemi skuli vera 10% árið 2030. Frumvarp þetta er liður í að ýta undir framþróun í skipakosti með það fyrir augum að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og losun gróðurhúsalofttegunda. Frumvarpið hefur verið unnið í matvælaráðuneytinu í samráði við stofnanir, hagsmunaaðila og almenning með birtingu áforma og frumvarpsdraga í samráðsgátt stjórnvalda.
Ég mun nú víkja nánar að einstökum þáttum frumvarpsins. Í gildandi lögum um stjórn fiskveiða er stærðartakmörkun fyrir báta til að öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem hefur áhrif á upptöku nýrra orkugjafa. Í lögunum kemur fram að þeir bátar einir geti öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem eru styttri en 15 m að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn. Í frumvarpinu er lagt til að heimilt verði að bátar sem nota vistvæna orkugjafa séu stærri en samkvæmt stærðartakmörkunum gildandi laga þar sem notkun vistvænna orkugjafa kallar á aukið rými, þ.e. stærri geyma eða rafhlöðu. Enn fremur þarf að huga að öryggi áhafnar ef notaðir eru eldfimir orkugjafar og öryggisráðstafanir krefjast aukins rýmis í bátunum. Er því lagt til að krókaaflamarksbátum sem ganga a.m.k. til helminga fyrir vistvænum orkugjöfum verði heimilt að vera 50% stærri, eða 45 brúttótonn, en þeir bátar sem geta sem nú geta fengið leyfi til veiða með krókaaflamarki. Ekki er gert ráð fyrir að lengd bátanna aukist. Til vistvænna orkugjafa samkvæmt frumvarpinu telst rafmagn, vetni, metan og rafeldsneyti. Einnig er heimild fyrir ráðherra að leyfa aðra vistvæna orkugjafa með lágu kolefnisspori samkvæmt ákvæðinu. Frumvarpið er ekki talið gefa tilefni til skoðunar á samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar. Talið er að ákvæði frumvarpsins hafi engin áhrif á fjárhag ríkissjóðs. Ekki er talið að frumvarpið hafi áhrif á stöðu kynjanna.
Herra forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessa frumvarps og vil að öðru leyti vísa til þeirrar greinargerðar sem fylgir því en þar er ítarlega fjallað um efni þess. Að lokinni umræðunni legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar til umfjöllunar.