stjórn fiskveiða.
Forseti. Hér er mælt fyrir frumvarpi sem á að hvetja til samdráttar í kolefnislosun frá útgerð. Eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra Guðmundar Inga Guðbrandssonar hefur íslenskur sjávarútvegur náð gríðarlegum árangri í að draga úr losun á undanförnum 20 árum. Hvers vegna? Jú, þetta hefur verið viðfangsefni sem hefur verið umtalsvert rannsakað og þekki ég til nokkurra vísindagreina sem hafa verið birtar um þetta efni, þar með talið greinar sem ég hef verið meðhöfundur á sjálfur. Þessar rannsóknir sýna allar svo ekki verður um villst að stærsti áhrifaþátturinn í þessari breytingu, sem er jákvæð og góð fyrir íslenskan sjávarútveg, hefur raunar verið uppbygging þorskstofnsins. Það er einfaldlega þannig að það þarf minni olíu til að sækja fisk í stóra auðlind heldur en litla.
Rétt er, eins og fram kom í máli hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, að kolefnisspor handfæra í þessum rannsóknum er mun minna heldur en kolefnisspor stærri skipa. Ef horft er til heildarábata samfélagsins af starfseminni væri þess vegna rétt að taka tillit til þess að þessi umhverfisáhrif handfæra- og línuveiða eru mun minni heldur en umhverfisáhrif annarra veiðarfæra, þar með talið togveiða.
Sá áhrifaþáttur sem næstur kemur á eftir stærð stofna er verð á olíu. Þau áhrif eru ekki óháð því hvers konar veiðar eru stundaðar, þannig eru línu- og handfæraveiðar viðkvæmari fyrir olíuverði heldur en togveiðar. Fyrir 1% aukningu í olíuverði dregst losun handfæra- og línubáta saman um 0,44% en einungis um 0,18% í togveiðum. Mér er þess vegna nokkur spurn yfir þeirri nálgun sem fram kemur í þessu frumvarpi. Ef við höfum notað kolefnisgjöld sem við vitum að skapa heilbrigða hvata til að draga úr losun, hvers vegna er farin sú leið sem farin er í þessu frumvarpi? Kolefnisgjöld hafa þann kost að við vitum nákvæmlega hvað samdrátturinn kostar, annaðhvort dregur þú einfaldlega úr losun eða greiðir gjaldið. Þau uppfylla það skilyrði að sá sem mengar borgar, sem gjarnan hefur verið haft sem viðmið í baráttunni sem við þurfum að há við losun gróðurhúsalofttegunda. Í öllum þeim lausnum sem verða til umræðu hér í kvöld, í þessu frumvarpi sem og næstu tveimur, er það hins vegar ríkið sem borgar þeim sem menga með ýmsum ívilnunum.
Ég tek undir orð hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur um að mörgum spurningum sé ósvarað. Við erum vissulega einungis í 1. umr. og þetta mál verður væntanlega tekið til vandaðrar meðferðar hjá þinginu og vonandi verður þessum spurningum svarað. En spurningarnar sem vakna hjá mér eru m.a. þessar: Hvers vegna telja stjórnvöld sig megnug að velja tæknilausnir fyrir sjávarútveginn? Er ekki heppilegra að sjávarútvegurinn velji sjálfur tæknilausnir? Hvers vegna eru kolefnisgjöld, sem við vitum að virka, ekki notuð? Hvers vegna eru notaðar ívilnanir sem enginn veit hvað kosta?
Hv. þingmaður kom inn á nokkra ótalda liði sem eru eins konar skuggaliðir en það er alveg ljóst að við erum með tvískipt sjávarútvegskerfi vegna þess að handfæraveiðarnar eiga að ná ákveðnum árangri, samfélagsárangri, sem ég tek undir með þingmanninum að sé alls ómetið hvort verði fyrir áhrifum vegna þessara breytinga. Hvers vegna er áherslan á handfæraveiðar sem þrátt fyrir allt eru umhverfisvænustu veiðarnar sem stundaðar eru við Ísland? Hvers vegna er áhersla á tæknilausnir sem rannsóknir sýna að hafa ekki skilað miklu hingað til?
Ég verð að taka undir áhyggjur hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur varðandi það að opna stærri hluta lögsögunnar fyrir stærri skipum. Við höfum aldrei, kannski vegna þess að það var erfitt að framkvæma þær rannsóknir af því togveiðarnar höfðu þegar verið stundaðar mjög lengi, eiginlega metið hvaða áhrif togveiðar hafa haft á uppeldisumhverfi, t.d. botnfiska eins og þorsks. Því vænti ég þess og vona að vikið verði að þessum hlutum. Mér finnst þetta frekar ódýrt. Ég held að það hefði verið hægt að velja einfaldari lausnir sem við vitum að virka og höfum rannsóknir sem sýna að virka. Mér finnst líka skjóta skökku við, þegar verið er að fást við atvinnustarfsemi eins og sjávarútveg sem gengur með miklum ágætum, að kostnaðurinn af þessu falli á ríkið í formi ívilnana sem það veitir útgerðinni. Því þarf að svara spurningum eins og: Hvað kosta þessar lausnir? Auðvitað veit það enginn í dag og ef enginn veit það hlýtur sú spurning að vakna hvort okkur sé sama um hvað árangur okkar í loftslagsmálum kostar.