fjölmiðlar.
Virðulegi forseti. Hér verður mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á fjölmiðlalögum, nr. 38/2011, um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Fjölmiðlar eru hornsteinn lýðræðis. Frjálsir og óháðir fjölmiðlar eru forsenda opinnar lýðræðislegrar umræðu og veita stjórnvöldum, atvinnulífinu og helstu stofnunum samfélagsins nauðsynlegt aðhald, enda getur ekkert lýðræði þrifist eða blómstrað ef ekki er til staðar frjálst og upplýst samtal. Fjölmiðlar flytja nefnilega ekki aðeins fréttir af málefnum líðandi stundar heldur eru þeir einnig mikilvægur vettvangur skoðanaskipta um brýn þjóðfélagsleg málefni hverju sinni og stuðla þannig að opinni og upplýstri umræðu sem skiptir verulegu máli fyrir ákvarðanatöku.
Virðulegi forseti. Markmið frumvarpsins er að styðja með fyrirsjáanlegum hætti við einkarekna fjölmiðla, sem eiga nú undir högg að sækja sem aldrei fyrr, en með stuðningnum er þeim gert betur kleift að sinna hlutverki sínu. Ört versnandi staða einkarekinna fjölmiðla hér á landi sem og víða annars staðar hefur varla farið fram hjá neinum. Samdrátturinn sem orðið hefur á undanförnum árum er helst rakinn til þess að sífellt meira fjármagn til auglýsingakaupa rennur í vasa erlendra alþjóðlegra stórfyrirtækja á borð við Facebook, Google og Youtube. Þannig rann tæplega helmingur þess fjár sem varið var til birtingar auglýsinga á síðasta ári til erlendra aðila samkvæmt nýrri samantekt Hagstofunnar, eða hátt í 10 milljarðar kr. Það er vissulega há fjárhæð en hún kemur kannski ekki á óvart þar sem greiðslur til erlendra aðila fyrir birtingu auglýsinga og aðra markaðsstarfsemi hafa nær tvöfaldast á tæpum áratug. Tekjutap íslenskra einkarekinna fjölmiðla af þessum sökum hefur leitt til uppsagna, gjaldþrota og samþjöppunar á fjölmiðlamarkaði. Eitt af því sorglegasta við það er að við sjáum gríðarlega fækkun starfa í fjölmiðlum sem hefur orðið á undanförnum árum.
Virðulegi forseti. Frá því að núverandi styrkjakerfi til einkarekinna fjölmiðla var komið á fót hefur stuðningurinn skipt sköpum, sérstaklega fyrir fjölmiðlafyrirtæki í vexti sem eru að þróa sjálfbæran rekstur, og hefur jafnvel leitt til fjölgunar starfa. Í umsögn Blaðamannafélags Íslands við fjárlagafrumvarpið 2022 kemur fram að hver króna í styrk geti leitt af sér aðra krónu í nýjum tekjum sem svo hefur umbreyst í ný störf. Í tilfelli stærri fjölmiðlafyrirtækja, sem treyst hafa að uppistöðu á auglýsingatekjur, hafa styrkirnir mildað högg faraldursins, ásamt breyttum forsendum á auglýsingamarkaði, og gert þeim kleift að forðast fjöldauppsagnir. Þá má greina í mati á stuðningi ársins 2021 að hann hafi m.a. gert sumum fjölmiðlum kleift að halda útgáfu óbreyttri, komið í veg fyrir frekara aðhald í rekstri og bætt stöðu blaða- og fréttamanna.
Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu er lagt til að framlengdur verði gildistími ákvæðis um stuðning við einkarekna frétta- og dagskrármiðla vegna kostnaðar sem fellur til við miðlun frétta og fréttatengds efnis og umfjöllunar um samfélagsleg málefni. Lagt er til að gildistími ákvæðanna verði eitt ár.
Markmið frumvarpsins er að styðja með fyrirsjáanlegum hætti við einkarekna fjölmiðla og gera þeim betur kleift að sinna hlutverki sínu. Þær breytingar sem gerðar eru á gildandi ákvæðum felast í breyttri skipan úthlutunarnefndar, heimild til að afla álits sérfróðra aðila og breyttum umsóknarfresti. Þá er í frumvarpinu lagt til nýtt ákvæði sem mælir fyrir um að aðrir opinberir styrkir sem umsækjandi hafi hlotið verði dregnir frá þeirri fjárhæð sem telst stuðningshæfur kostnaður. Undantekning er gerð í tilfelli styrkja úr byggðaáætlun og að styrkþegar skuli skila inn greinargerð til úthlutunarnefndar um ráðstöfun styrkfjár eigi síðar en sex mánuðum eftir úthlutun styrks og að umsókn um rekstrarstuðning næsta ár verði aðeins tekin til greina hafi styrkþegi staðið skil á framangreindri greinargerð.
Í stjórnarsáttmála kemur fram að staða einkarekinna fjölmiðla verði metin áður en ákvæðin sem mæla fyrir um stuðninginn falla brott með hliðsjón af þeirri vinnu sem lögð er til. Gildistími ákvæðanna verði framlengdur með smávægilegum breytingum sem taka mið af þeirri reynslu sem hlotist hefur sl. tvö ár og þróun sambærilegs stuðnings annars staðar á Norðurlöndunum. Norðurlöndin hafa einmitt verið í fararbroddi í stuðningi við frjálsa fjölmiðlun um áratugaskeið. Í Danmörku, Noregi og Svíþjóð er nú unnið að umfangsmiklum breytingum á stuðningi við einkarekna fjölmiðla. Í ljósi þess og þeirrar miklu og löngu reynslu sem þjóðirnar hafa af fjölmiðlastyrkjum er lagt til að núgildandi ákvæði verði framlengd um eitt ár með það að markmiði að innan þess tímaramma verði lagt fram frumvarp með gildistíma til fimm ára í senn sem sé í takt við þróun annars staðar á Norðurlöndunum og ákall fjölmiðlanna sjálfra um aukinn fyrirsjáanleika. Þannig verði Ísland ekki eftirbátur hinna landanna er kemur að stuðningi við frjálsa fjölmiðla.
Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu er einmitt leitast við að Ísland skipi sér í hóp hinna Norðurlandanna og fleiri ríkja Evrópu sem styrkja einkarekna fjölmiðla og stuðli þannig að fjölbreytni í fjölmiðlum. Þess er vænst að sá stuðningur sem frumvarpið gerir ráð fyrir geri fjölmiðlum áfram kleift að efla ritstjórnir sínar sem vettvang skoðanaskipta og tjáningarfrelsis og með þeim hætti rækja hlutverk sitt sem einn af hornsteinum lýðræðisins. Ég hvet þingheim til þess að ná samkomulagi og sátt um þetta mál enda mikilvægt fyrir íslenskt samfélag.
Virðulegur forseti. Að því mæltu legg ég til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.