ÍL-sjóður.
Forseti. Hér er til umræðu mjög sérkennilegt mál. Blaðamannafundur hæstv. efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssonar, þar sem hann lýsti þeirri hugmynd að taka snúning á fjármagnseigendum, hefur eðlilega dregið nokkurn dilk á eftir sér, enda sennilega um nokkuð fordæmalitla aðgerð að ræða í Íslandssögunni. Það sem veldur mér áhyggjum, og er ástæðan fyrir því að ég kveð mér hljóðs, er að þetta verður tæplega síðasta skiptið, eða vonandi ekki, sem ríkið ræðst í aðgerð þar sem það sækist eftir fjármögnun aðila á markaði.
Uppi hafa verið hugmyndir um átak í samgöngumálum á Íslandi. Þar hefur verið velt upp þeim hugmyndum að taka höndum saman við ytri fjármögnunaraðila um fjármögnun þeirra verkefna þar sem ríkið kæmi að með einhvers konar tryggingu fyrir endurgreiðslu en fjármögnunaraðila yrði heimiluð gjaldtaka yfir einhvern ákveðinn tíma. Við höfum ágæta reynslu af slíkum framkvæmdum og er þar nærtækast að nefna Hvalfjarðargöngin.
Mörg slík verkefni gætu verið fram undan og það er vissulega þannig að Viðreisn, sá flokkur sem ég sit hér fyrir, myndi líta slíkar hugmyndir jákvæðum augum. Er hins vegar líklegt að kjörin sem byðust á markaði, eftir að þetta mál hefur komið upp, yrðu þau sömu og boðist hefðu hefði þetta mál ekki komið upp? Er með öðrum orðum hægt að taka snúning á fjármagnseigendum án eftirkasta? Reynsla annarra ríkja og reynsla einkaaðila af slíkum málum bendir til þess að svo sé ekki, þ.e. að aðgerð sem á yfirborðinu og hugsanlega í augum einhverra er mikil snilld og gæti sparað ríkissjóði umtalsverðar upphæðir, þó að það liggi engan veginn fyrir að það sé rétt, mun hugsanlega draga umtalsverðan dilk á eftir sér í formi hærri vaxtagjalda á sambærilegum verkefnum eða verkefnum þar sem fjármagn yrði sótt út á markað með ríkisábyrgð í framtíðinni og koma í veg fyrir að þjóðþrifaverkefni verði framkvæmd.
Það er mjög skrýtið að ekki hafi farið fram ítarlegri könnun á því hvaða afleiðingar þessi ákvörðun gæti haft inn í framtíðina á kjörin sem byðust í verkefnum af þessum toga í framtíðinni; vegir sem ekki verða byggðir, framkvæmdir sem ekki verður ráðist í vegna þess að fjármagn á viðunandi kjörum fæst ekki og það fæst ekki vegna þess að orðspor aðilans sem hyggst tryggja niðurstöðuna hefur beðið hnekki vegna athafna sem hann sýndi af sér í fortíðinni. Þetta er ekki langsótt. Þetta er þvert á móti fullkomlega eðlileg ályktun af þeirri umræðu sem hefur átt sér stað í þessu máli.
Eitt er hvort þessi hugmynd hefði til skamms tíma getað skilað árangri. Þar hefði auðvitað þurft að taka tillit til hvaða áhrif hún hefur á tekjur ríkisins, t.d. af tekjusköttum sem greiddir eru af lífeyrisgreiðslum sem greiddar eru út eða kostnaði vegna ellilífeyris sem þarf að greiða út til að bæta upp lífeyrissjóðsgreiðslur sem ekki duga til framfærslu. En hin spurningin er, og henni hefur ekki verið svarað, hvaða afleiðingar þetta mun hafa fyrir sambærileg verkefni í framtíðinni, verkefni sem ekki verða framkvæmd eða verða framkvæmd með dýrari hætti, sem væntanlega mun þýða að notendur þeirra verkefna þurfa að greiða álag vegna notkunar sinnar, t.d. á samgöngumannvirkjum, einmitt vegna þess að fjármögnunin var dýrari og fjármögnunin var dýrari vegna aðgerða ríkisins í þessu máli.
Engin af þessum rannsóknum fór fram. Ég verð að viðurkenna að þetta þykir mér frekar mikil skammsýni og vanreifun á þessu máli, vanathugun á því hvaða kostir væru raunverulega í stöðunni og hverju þeir myndu skila ríkissjóði til lengri tíma. Mér fannst eðlilegt að nýta tækifærið og koma hér upp og vekja athygli á þessum kostnaðarlið sem vissulega hefur verið nefndur hér af öðrum þar sem afleiðingarnar liggja ekki núna heldur í framtíðinni. Þetta er vandamál af sama meiði og skuldasöfnun ríkisins á þeim vaxtakjörum sem ríkissjóði bjóðast, reikningur sem skammlaust er sendur kynslóðum framtíðarinnar.