ÍL-sjóður.
Herra forseti. Hvaða áhrif hefur það á trúverðugleika íslenska ríkisins, traust til ríkissjóðs sem útgefanda skuldabréfa og þýðingu ríkisábyrgðar í framtíðinni ef ÍL-sjóður yrði nú knúinn í þrot með lagasetningu frá Alþingi, í rauninni afturvirkum breytingum á skilmálum þessara skuldabréfa, ef ÍL-sjóður yrði knúinn í þrot til að velta þessum byrðum sem þarna er um að tefla yfir á lífeyrissjóðina, yfir á t.d. almannaheillasamtök — Styrktarsjóður hjartveikra barna er t.d. einn af skuldabréfaeigendunum — ef ÍL-sjóður yrði settur í þrot til þess að koma beinlínis í veg fyrir að þessir skuldabréfaeigendur nytu vaxtagreiðslna og nytu verðbóta út líftíma þessara skuldabréfa, sem er hafið yfir allan vafa að voru og eru ríkistryggð, með ríkisábyrgð? Þau voru gefin út af ríkisstofnun. Þetta er ekki eitthvert Icesave-mál, það er ríkisstofnun sem gaf út þessi skuldabréf og skilmálarnir ofboðslega skýrir, bréfin óuppgreiðanleg, fastir vextir, ákveðinn lánstími o.s.frv. Þetta er nú svona stóra spurningin í þessu ÍL-sjóðs máli og ein af þeim þremur sem ég lagði fyrir hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra með fyrirspurn til skriflegs svars þann 28. nóvember síðastliðinn.
Nú er heilmikið vatn runnið til sjávar síðan hæstv. ráðherra boðaði til blaðamannafundar og setti fram ansi skrautlegar yfirlýsingar um afarkosti ríkisins í þessu máli og eftir því sem tíminn líður og rykið sest þá verður þessi blaðamannafundur sérkennilegri og sérkennilegri í minningunni. Nú hefur Logos lögmannsþjónusta skilað álitsgerð fyrir lífeyrissjóðina þar sem færð eru mjög sterk rök fyrir því að hér sé um að ræða eignarréttindi, að vextir og verðbætur út lánstímann heyri allt saman til eignarréttinda sem ekki verði skert bótalaust. Í þeirri álitsgerð kemur fram að lögmannsstofan hafi kannað sérstaklega hvort dæmi séu um að gripið hafi verið til sambærilegra ráðstafana í 17 helstu ríkjum Evrópu, eins og það er orðað. Engin dæmi, segir Logos, hafa fundist þar um viðlíka ráðstafanir í tengslum við skuldbindingar stofnana sem umrædd ríki bera ábyrgð á. Þau þurftu eiginlega að leita til Grikklands, til ráðstafana sem var gripið til þar í miðri evrukreppu 2010–2011, til þess að finna eitthvað sem gæti hugsanlega að einhverju leyti verið sambærilegt við það sem hæstv. fjármálaráðherra var í raun að hóta að gera. Þess vegna spurði ég líka, í þessari skriflegu fyrirspurn til hæstv. ráðherra, hvort hann þekkti einhver dæmi úr samtímanum um að evrópskt ríki, fyrir utan Grikkland í þessu tilfelli, gripi til viðlíka ráðstafana vegna skuldbindinga sem ríkið eða stofnun sem ríkið ber óumdeilanlega ábyrgð á hefur stofnað til. Það verður fróðlegt að fá svörin við því.
Nú hefur Róbert Spanó, fyrrverandi forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, lagt mat á þau sjónarmið sem komið hafa fram í þessu máli. Mér finnst það athyglisvert að Róbert Spanó fullyrðir að í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu séu engin dæmi um svona víðtæka heimild löggjafans til bótalausra eignaskerðinga af því tagi sem hér um ræðir og við þær aðstæður sem hér eru uppi. Þarna er hann í rauninni að svara því lögfræðiáliti sem hæstv. fjármálaráðherra byggði sinn málflutning á. Róbert Spanó sat sjálfur í dóminum sem tók afstöðu til þess hvort ráðstafanir grískra stjórnvalda hefðu staðist ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og hann segir, með leyfi forseta:
„Ég er fyllilega sammála þeirri niðurstöðu sem fram kemur í álitsgerð LoL (sjá bls. 39) að ekkert bendi til þess að þær forsendur sem lágu til grundvallar ráðstöfunum gríska ríkisins í því máli geti með nokkru móti jafnast á við þær aðstæður sem eiga við um ÍL-sjóð.“
Hann telur að hér sé um að ræða lagasetningu sem myndi fela í sér eignarnám og myndi baka ríkinu bótaskyldu og að kröfurnar teljist að fullu eign í skilningi stjórnarskrár Íslands og mannréttindasáttmálans. Ég hallast að því, og ég hef sagt það hér áður, að ráðherra hafi þarna gerst sekur um mjög alvarlegt frumhlaup sem hafði auðvitað strax áhrif á virði þessara bréfa og að það færi best á því að hann í rauninni drægi þessar hótanir sínar til baka í stað þess að halda virði þessara eignaflokka í óvissu, halda í raun virði bréfanna niðri algerlega að ósekju því með því er hann bæði að skaða trúverðugleika ríkissjóðs sem útgefanda skuldabréfa og að skaða hagsmuni lífeyrissjóðanna og sjóðfélaga þeirra.