153. löggjafarþing — 51. fundur, 16. des. 2022.
tilhögun þingfundar.
Forseti vill geta þess að ráðgert er að gera 15 mínútna hlé á þessum þingfundi strax eftir störf þingsins fyrir þingflokksfundi. Eftir hléið hefjast atkvæðagreiðslur um 2.–7. dagskrármálið. Að loknum atkvæðagreiðslum verða tekin fyrir næstu dagskrármál og að afloknum umræðum í þeim verður boðað til atkvæðagreiðslna um 8.–16. dagskrármálið.