153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

Störf þingsins.

[10:38]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Nú nálgumst við þinglok, mín þriðju hér á Alþingi. Enn einu sinni fer sama leikritið í gang bak við tjöldin þegar þinglok nálgast. Stjórnarmeirihlutinn reynir að keyra í offorsi í gegn eins mörg mál og hann getur í von um að hægt sé að nota löngun þingmanna stjórnarandstöðunnar til að komast í frí til þess að ekki þurfi að fara jafn vel yfir málin og annars væri gert. Á sama tíma notar stjórnarandstaðan sitt eina verkfæri, þ.e. að geta rætt mál til hlítar til þess að byggja upp samningsstöðu. Þessi samningsstaða getur snúist um að semja um að eitthvert mál verði ekki tekið fyrir, að fjármagn sé sett í ákveðin verkefni eins og niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, nú eða að tollar á franskar lækki. Í hvert skipti eru stjórnarflokkarnir vissir um að málgleði stjórnarandstöðunnar verði ekki eins mikil og síðast og núna hljóti þau að gefast upp sem fyrst, merkilegt nokk. Báðar hliðar leika sama leik og þetta leiðir auðvitað til þess að þegar nokkrir dagar eru eftir fram að þingfrestun þá endar alltaf allt með því að samningar nást og restin af málunum er keyrð á hraðferð í gegnum þingið, oft svo hratt að stórar villur uppgötvast í lagasetningu. Við sem komum úr öðrum geirum spyrjum okkur hvort þetta leikrit sé virkilega nauðsynlegt, hvort ekki sé frekar hægt að vinna betur saman, fá ríkisstjórnina til að leggja frumvörp fram nægilega snemma, fá alvöruumfjöllun í nefnd um málin þar sem hlustað er á athugasemdir og reynt er að ná samkomulagi við minni hlutann um afgreiðslur og lagfæringar í stað þess að beita meirihlutavaldinu til að þröngva málum í gegn. En, nei, sú steinaldarstjórnmálamenning sem hér tíðkast fær okkur til að fórna faglegum vinnubrögðum og lýðræðislegri samvinnu fyrir vanhugsað og óþarft valdatafl sem engu skilar öðru en fljótfærnismistökum og gremju.