153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

Störf þingsins.

[10:42]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Virðulegi forseti. Geðheilbrigði er eitt mikilvægasta lýðheilsumál okkar tíma. Þingið samþykkti niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu á síðasta kjörtímabili en enn bólar ekkert á raunverulegum fjárveitingum af hálfu ríkisstjórnarinnar til að gera niðurgreiðsluna að raunveruleika. Það er löngu kominn tími til að við tökum geðheilbrigðismálin föstum tökum og viðurkennum þau sem raunverulegt lýðheilsuvandamál sem íslensk stjórnvöld taka alvarlega. En einhverra hluta vegna þarf niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu alltaf að sitja á hakanum. Margt fólk hefur einfaldlega ekki efni á því að fá þá nauðsynlegu sálfræðimeðferð sem þau þurfa til að geta lifað við velsæmandi geðheilbrigði og liðið vel í hversdagsleikanum. En þetta eru lífsgæði sem ættu ekki að velta á fjárhag fólks.

Forseti. Ég skil ekki hvers vegna við klárum ekki málið bara og gerum fólki kleift að sækja sér aðstoð óháð fjárhagsaðstæðum hverju sinni með því að láta ríkissjóð taka þátt í að niðurgreiða sálfræðiþjónustu. Þetta er eitthvað sem við samþykktum og þetta er eitthvað sem þurfum að standa við.

Virðulegi forseti. Ég spyr mig hvort það sé þörf á viðhorfsbreytingu hvað varðar geðheilbrigðismál. Eru þau einfaldlega ekki talin falla undir skilgreininguna á heilsu? Erum við á Alþingi að setja fordæmi fyrir restina af samfélaginu með því að leyfa þessu að sitja á hakanum í svona langan tíma? Mér þykir þetta afar sorgleg afgreiðsla á annars mjög mikilvægu máli. Við höfum ekki lengur efni á því að taka þetta ekki föstum tökum. Ábyrgð okkar hér á Alþingi er mikil og það er kominn tími til að við öxlum hana.