Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í dag má reikna með að fjárlög verði samþykkt hér á þinginu, fjárlög sem eiga að halda utan um alla þá þjónustu sem okkur ber að veita og allar þær fjárfestingar sem ætlunin er að ráðast í og allar þær afborganir sem við þurfum að greiða á árinu. Eins og svo oft áður eru skoðanir skiptar um þá forgangsröðun sem birtist í fjárlagafrumvarpinu. Mörg okkar hafa bent á ýmislegt sem ekki er þar að finna og einnig á þá málaflokka sem eru vanfjármagnaðir. Við sjáum það sérstaklega í heilbrigðiskerfinu og við sjáum þetta einnig í samskiptum ríkisins við sveitarfélögin. Þar ber hæst málaflokkur fatlaðs fólks sem sveitarfélögin tóku yfir árið 2011. Þessi málaflokkur hefur verið rekinn með halla allt frá árinu 2018 þegar lögunum var breytt og þjónusta við fatlað fólk stóraukin. Því miður hefur ríkið ekki brugðist við þessu á nokkurn hátt og skilur sveitarfélögin eftir með halla upp á sem nemur á fjórða tug milljarða. Ekki var gerð nein tilraun í fjáraukalögum til að koma til móts við sveitarfélögin fyrir þetta ár þrátt fyrir ábendingar sveitarfélaganna og þrátt fyrir að um stöðuna hafi verið skrifuð athyglisverð skýrsla sem dregur þetta allt saman fram. Í fjárlögum næsta árs er loksins verið að bregðast við og færa sveitarfélögunum viðbótartekjur með hækkun á útsvari en sú hækkun dugar hins vegar hvergi nærri til. Verið er að gera ráð fyrir að þessi hækkun skili sveitarfélögunum 5 milljörðum kr. en vanfjármögnunin nam 14,2 milljörðum á árinu 2021. Við þessu lokar ríkisstjórnin eyrunum.